501. spurningaþraut: Stalingrad, Wizz Air, París og trommuleikari Bítlanna — þetta kemur allt við sögu!

501. spurningaþraut: Stalingrad, Wizz Air, París og trommuleikari Bítlanna — þetta kemur allt við sögu!

Og þá vindum vér oss til leiks, og fyrri auka­spurn­ing hljóðar svo:

Hvaða dýr má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað ár hófst orr­ustan við Stal­ingrad?

2.  Philips raf­tækja­fyr­ir­tækið — í hvaða landi er það upp­runnið?

3.  En flug­fé­lagið Wizz Air?

4.  Hvaða höf­undur skrif­aði æviminn­ingar í bók­unum Minn­is­bók, Bernsku­bók og Tán­inga­bók?

5.  Fræg crossfit-stjarna hefur ann­ast podcastið Eigin konur ásamt Fjólu Sig­urð­ar­dóttur. Hvað heitir cross-fit stjarnan?

6.  Hvað heitir áin sem rennur um Par­ís­ar­borg?

7.  Hver skrif­aði bók­ina um Baskerville-hund­inn?

8.  Sænsk leik­kona var skírð Mia Pernilla og bar eft­ir­nöfnin Hertzman-Ericson við fæð­ingu en þegar hún hóf leik­feril sinn í sjón­varps­s­eríu Ingmars Bergmans Fanny & Alex­ander not­aði hún nafnið Wallgren eftir stjúp­föður sínum. Um það leyti gift­ist hún reyndar rit­höf­undi einum að nafni Klas Östergren og tók sér þá eft­ir­nafn hans. Þau Östergren skildu og 1991 gift­ist hún dönskum leik­stjóra og tók sér þá nafnið hans. Því nafni hefur konan haldið þótt þau danski leik­stjór­inn séu nú líka skilin. Undir hvaða nafni þekkjum við sem sagt þessa leikkonu nú um stundir?

9.  Trommu­leik­arar Bítlanna voru tveir. Sá fyrri var rek­inn og þá tók ... hver ... við kjuð­unum?

10.  En hvað hét fyrri trommu­leik­ari þess­arar frægu hljóm­sveitar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  1942.

2. Hollandi.

3.  Ung­verja­landi.

4. Sigurður Pálsson.

5.  Edda Falak.

6.  Signa.

7.  Conan Doyle.

8. Pernilla August.

9.  Ringo Starr.

10.  Peter Best.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Dýrið á efri mynd­inni er sjakali, nánar til­tekið hlið­ar­andasjakali (side-striped jackal), sá er í Afríku býr — en sjakali dugar sem rétt svar.

Á neðri mynd­inni er Michelle Robinson, síðar Michelle Obama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár