485. spurningaþraut: Tvær systur, tvær eyjar en hve margir kettir?

485. spurningaþraut: Tvær systur, tvær eyjar en hve margir kettir?

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hver skýtur úr byssu sinni á mynd­inni hér að ofan? Tvö nöfn koma til mála og telj­ast bæði rétt?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar er Marm­ara­haf?

2.  Hvað eru mörg spil í venju­legum spila­stokk?

3.  Hver skrif­aði laust fyrir 1800 harm­leik­inn Faust?

4.  Eftir því sem best er vitað á Síam­sköttur á Bret­landi heims­metið í kett­linga­fjölda, en sú læða eign­að­ist afkvæmi sín árið 1970. Fjórir kett­lingar dóu í fæð­ing­unni en hve margir voru þeir í heild? Hér má skeika einum kett­lingi.

5.  Warren Buffett er afar ríkur maður, einn sá allra rík­asti í heimi. Á hverju grund­vall­ast auð­hæfi hans?

6.  Í banda­rískri sögu er Barry Goldwater frægastur fyrir að hafa tapað for­seta­kosn­ingum með miklum mun. Fyrir hverjum?

7.  Nú er fyrir dómi í Þýska­landi mála­rekstur vegna þess að 2015 fjar­lægði lög­reglan ákveð­inn hlut úr kjall­ar­anum hjá tæp­lega átt­ræðum karli í þorp­inu Heik­end­orf í Schleswig-Holstein. Karlinn var alls ekki ánægður með að hlut­ur­inn væri tek­inn úr kjall­ar­anum en yfir­völdin vilja fá úr því skorið hvort hann hafi brotið lög með því að geyma svona í kjall­ar­anum hjá sér. Hver var þessi hlutur?

8.  Einn af þjóð­höfð­ingjum Evrópu á tvær systur sem heita Caroline og Steph­anie. Þær voru mjög í fréttum fyrir 30-40 árum. Sumum fannst þær frekar óþekkar, en þær sögð­ust nú bara vilja fá að lifa eðli­legu lífi. Hvað heitir þjóð­höfð­ing­inn bróðir þeirra?

9.  Hvað heitir stærsta eyjan við Spán?

10.  Krk heitir 20. stærsta eyjan í Mið­jarð­ar­haf­inu. Þar búa 20.000 manns. Hvaða ríki til­heyrir Krk?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Lítið á mynd­ina hér að neðan. Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Milli Eyjahafs og Svarta­hafs — og/eða milli Hellu­sunds og Bosporus.

2.  52.

3.  Goethe.

4.  19, svo rétt telst vera 18-20.

5.  Fjár­fest­ingum.

6.  Lyndon Johnson.

7.  Skrið­dreki.

8.  Albert. Hann er fursti í Mónakó.

9.  Mallorcka.

10.  Króatíu.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Skuggi eða Dreki. Hann var kall­aður báðum þessum nöfnum í íslenskum blöðum.

Á neðri mynd­inni er blá­gresi. Ég hef reyndar grun um að ég hafi spurt um blá­gresi áður, en það er þá í góðu lagi.

***

Lítið á hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár