„Svona slys rústa lífinu“

Ágústa Dröfn Guð­munds­dóttir lenti í mót­or­hjóla­lysi 16 ára gömul árið 1979 og lam­að­ist fyrir neðan brjóst. Hún talar hér meðal ann­ars um afleið­ingar slyss­ins, vina­miss­inn, mögu­leika lamaðrar konu til að kynn­ast mönnum, keis­ara­skurð­inn þegar hún var ekki mænu­deyfð, aðgerðir sem hún hefur farið í og hún talar líka um bar­átt­una. Lífs­bar­átt­una.

„Svona slys rústa lífinu“
Ágústa Dröfn Guð­munds­dóttir Ágústa seg­ist hafa lært að vera þol­in­móð og skiln­ings­rík vegna ástands­ins. Mynd: Heida Helgadottir

Hún opnar úti­dyrnar á heim­ili sínu. Situr í hjóla­stól. Býður til stofu. Tveir hundar heilsa á sinn hátt. Það eru þeir Krummi og Eló.

Ágústa Dröfn Guð­munds­dóttir ætlar að segja sögu sína. Hún ætlar að segja frá hvernig slysið breytti öllu.

Hún er frá Vest­manna­eyjum.

„Við krakk­arnir lékum okkur á vet­urna í snjónum og á skautum og á sumrin var ég að vinna; ég var alltaf í fiski þegar var ekki skóli. Maður var eins og hinir ung­ling­arnir; hang­andi með öðrum. Ég var eitt­hvað að spila hand­bolta og æfa sund. Þetta var ósköp ein­angrað. Maður fór ekk­ert oft til Reykja­víkur eða „upp á land“ eins og við sögðum. Ég var svo mik­ill krakki og svo ung þó mér hafi fund­ist ég vera orðin full­orðin 16 ára.“

Hún átti kærasta og eitt októ­berkvöld árið 1979, þegar hún var einmitt 16 ára, sat hún aftan á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár