Lögmaður Ballarin orðinn eigandi helmingshlutar nýja WOW

Páll Ágúst Ólafsson, lögmaður og talsmaður Michele Ballarin, sem keypti eignir þrotabús WOW air árið 2019 er orðinn eigandi helmings hlutafjár í félaginu sem stendur að baki hinu nýja WOW. Félagið er sagt hafa sótt um flug­rekstrar­leyfi hjá Samgöngu­stofu.

Páll Ág­úst Ólafs­son og Michele Ball­ar­in.
Páll Ág­úst Ólafs­son og Michele Ball­ar­in. Mynd: legaliceland.com / mbl

Páll Ágúst Ólafsson lögmaður er nú skráður eigandi af helmingi hlutafjár íslenska félagsins sem stendur að baki endur­reisn WOW Air; félagsins sem fullyrt er að hafi sótt um flug­rekstrar­leyfi til Samgöngu­stofu. Hann hefur starfað sem lögmaður og talsmaður Michele Lynn Golden-Ballarin, líka kölluð Michele Roosevelt Edwards, sem keypti eignir úr þrotabúi WOW árið 2019. 

Óljóst er hvort hann leppi eignar­hald einhvers annars; að hann sé ekki hinn raun­verulegi eigandi þó hann komi fram sem slíkur gagnvart almenningi og stjórn­völdum. Í viðtali við Kveik fyrr á árinu sagðist Ballarin hafa þann háttinn á gagnvart hlutum sem hún sagðist eiga í Icelandair.

Ekki náðist í Pál Ágúst, annan aðal­eiganda hins nýja WOW, í dag. 

Gjald­þrotaWOW air varð gjald­þrota árið 2019 og birt­ist þá Micele Ballarin óvænt og keypti eignir þrota­bús­ins.

Í Frétta­blaðinu í morgun var greint frá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár