Tilkynnt hefur verið um tímabundið veikindaleyfi Lilju Daggar Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Samkvæmt vef ráðuneytisins leysir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og flokksbróðir hennar, hana af.
Þetta var tilkynnt í morgun á vef ráðuneytisins. Þar segir að leyfið sé samkvæmt læknisráði en engar frekari upplýsingar eru gefnar um það. Sigurður Ingi mun gegna starfinu til og með 28. júní næstkomandi.
Athugasemdir