Lífeyrissjóðir segja upp Init og láta kanna eigin starfshætti

Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóða hafa sagt upp samn­ingi við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Init um rekstur og þróun á tölvu­kerf­inu Jóakim, sem er líf­æðin í rekstri fjölda sjóða. Eigendur fyr­ir­tæk­is­ins höfðu selt því eigin þjón­ustu á sama tíma og þeir þáðu laun.

Lífeyrissjóðir segja upp Init og láta kanna eigin starfshætti
Lyk­il­kerfi Kerfið sem Init þró­aði og rak fyrir líf­ey­irs­sjóð­ina er notað af fjöl­mörgum líf­eyr­is­sjóðum og stétt­ar­fé­lögum. Mynd: Pressphotos

Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóða hefur sagt upp samn­ingi við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Init. Það hefur um ára­bil séð um þróun og rekstur tölvu­kerfis sem er líf­æðin í starf­semi fjölda stórra íslenskra líf­eyr­is­sjóða og stétt­ar­fé­laga. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt var á vef Gildis í dag. 

Milljóna viðskipti við sig sjálfa

Kveikur ljóstr­aði upp um hund­ruð millj­óna króna við­skipti Init við lyk­il­stjórn­endur og eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins fyrr á árinu. Höfðu starfs­menn­irnir rukkað Init um þjón­ustu á sama tíma og þeir höfðu verið á launum sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins. Til við­bótar hafði Init keypt þjón­ustu af syst­ur­fé­lagi að nafni Init-rekstur fyrir hund­ruð millj­óna á nokk­urra ára tíma­bili.

Í umfjöllun Kveiks kom fram að á árunum 2015 til 2019 hafi 636 millj­ónir farið frá Init til Init-rekstrar og aðrar 278 millj­ónir til þriggja einka­hluta­fé­laga í eigu þriggja eig­enda og lyk­il­starfs­manna Init. 

Kveikur vitn­aði einnig í stöðu­skýrslu sem KPMG gerði vegna áreið­an­leika­könn­unar á Init, þegar eig­end­urnir freist­uðu þess að selja fyr­ir­tækið. Þar komu fram marg­vís­legar efa­semdir um fyr­ir­komu­lag á rekstri Init, svo sem kaupa á þjón­ustu af syst­ur­fé­lag­inu Init-rekstri sem engir skrif­legir samn­ingar væru til um. 

Láta skoða sinn þátt

Jóakim er í eigu tíu líf­eyr­is­sjóða í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Reikni­stofa líf­eyr­is­sjóð­anna. Kerfið er líka notað af öðrum félögum, svo sem Eflingu, eins stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins. Gildi, sem er einn stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, til­kynnti um upp­sögn á samn­ingi Reikni­stof­unnar við Init í dag. 

Þar kemur einnig fram að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Ernst & Young hafi verið ráðið til að gera útt­tekt á starfs­háttum bæði Init og Reikni­stof­unnar. „Félagið mun taka út fram­kvæmd og efndir Init á samn­ingi við RL og sölu félags­ins á þjón­ustu til þriðja aðila. Einnig verður fram­kvæmd RL á samn­ingnum og eft­ir­fylgni tekin til skoð­unar,“ segir í til­kynn­ingu Gildis.

Almar Guð­munds­son hefur einnig verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Reikni­stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár