Forsætisráðherra sammála utanríkisráðherra Noregs: „Orðspor Samherja er laskað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að það sé sann­ar­lega rétt að orð­spor Samherja sé laskað út af Namib­íu­mál­inu. Hún segir að rann­sókn máls­ins sé í form­legum far­vegi og að bíða þurfi nið­ur­stöðu.

Forsætisráðherra sammála utanríkisráðherra Noregs: „Orðspor  Samherja er laskað“
Tekur undir að orð­spor Samherja sé laskað Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tekur undir þau orð sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noreg að orð­spor Samherja sé laskað. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Orðspor Samherja er laskað og það er vegna fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins. Auðvitað hefur það  áhrif á traust til þess,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í svari sínu til Stund­ar­innar aðspurð um orð sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Noregs, Odd Emil Ingebrigt­sen, að Samherji væri með „lélegt“ eða „laskað orð­spor“ vegna Namib­íu­máls­ins.  Noregur ákvað að herða reglur um eft­ir­lit með erlendu eign­ar­hald í norskum sjáv­ar­ú­vegi vegna Samherja sam­kvæmt fréttum í norska blað­inu Dagens Nær­ingsliv.  

Orðrétt sagði ráð­her­ann norski um Samherja: „Þetta er fyr­ir­tæki sem er með orð­spor sem hefur beðið skaða. Norska land­helg­is­gæslan hefur oft þurft að hafa afskipti af skipum sem þeir eiga, en þetta er auð­vitað ekki heppi­legt. Horfa þarf betur á slík mál þegar stað­fest­ingar á eig­enda­breyt­ingum í sjáv­ar­út­vegi eru teknar fyrir í fram­tíð­inni.“

Samherji svar­aði orðum ráð­herr­ans norska í sömu grein og sagð­ist blaðið vera ósátt og undr­andi á orðum hans. „Okkar mat er alls ekki að orð­spor okkar sé laskað hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár