Til skoðunar að fá bóluefni lánað frá Dönum og Norðmönnum

Danir og Norðmenn hafa hætt notkun á bólefnum Jansen og AstraZeneca en við­ræður eru uppi um að Íslend­ingar fái birgðir þeirra bólu­efna lán­aðar frá lönd­unum tveimur. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir á upp­lýs­inga­fundi um stöðu Covid-19.

Bólu­setn­ingar gegn Covid-19 ganga vel hér á landi og útlit er fyrir að 60 til 70 pró­sent almenn­ings verði bólu­sett í júní eða júlí. Með því næðis hjarð­ó­næmi í land­inu. Til skoð­unar er að fá bólu­efni lánað frá Noregi og Danmörku, en báðar þjóðir hafa hætt notkun bólefna Jansen og AstraZeneca. Það hafa Íslend­ingar ekki gert og sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir á upp­lýs­inga­fundi að við­ræður væru í gangi um að fá aðgang að birgðum þjóð­anna tveggja. 

Í ljósi þess hversu vel bólu­setn­ing gengur þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af því að upp komi stórar hóp­sýk­ingar sem ekki verði ráðið við, sagði Þórólfur jafn­framt á fund­inum. Hann lét þau orð falla í því sam­hengi að ferða­mönnum færi nú ört fjölg­andi hér á landi. Það væri áskorun varð­andi skimun á landa­mær­unum en ætti ekki að valda hættu á tíð­ari sýk­ingum inn­an­lands, í ljósi bólu­setn­inga. 

    

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SBB
    Snæbjörn Björnsson Birnir skrifaði
    Norðmenn hafa reyndar ekki alveg hætt við Jansen. Þeir hafa tekið það út úr bólusetningaráætlun, en það er enn í boði fyrir þá sem vilja.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár