Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins eys svívirðingum yfir Gísla Martein

Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir Gísla Martein ljúga og að mál­flutn­ingur hans sé þvætt­ingur. Þá hafi Gísli Marteinn reynt að kaupa sig til áhrifa í póli­tík með bjór og pít­sum.

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins eys svívirðingum yfir Gísla Martein
Upp­nefnir og ræðst á Gísla Martein Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fer með him­in­skautum í grein sinni.

Marta Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hellir úr skálum reiði sinnar yfir Gísla Martein Bald­urs­son fjöl­miðla­mann og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa í aðsendri grein á Vísi. Ber Marta upp á Gísla Martein að hann ljúgi, hann sé far­inn að tapa minni, hann hafi gert til­raun til að kaupa sér frama í póli­tík með því að bera bjór og pít­sur í fólk og að Gísli Marteinn hafi bara tekið þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna þess að það hafi þjónað hans hags­munum.

Ástæða skrifa Mörtu, önnur en almenn óvild sem hún virð­ist af skrif­unum að dæma bera í hans garð, eru skrif Gísla Marteins á Facebook-síðu sína 20. apríl síð­ast­lið­inn. Þar sagði Gísli Marteinn að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í borg­inni væri and­vígur því að öku­hraði bíla í hverfum borg­ar­innar yrði lækk­aður. Það segir Marta að hafi verið árás á borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins „með ósann­indum og vís­bend­ingum um að þú [Gísli Marteinn] sért far­inn að tapa minni meira en góðu hófi gegnir.“

Marta heldur áfram og eys sví­virð­ingum yfir Gísla Martein í pistli sínum. Hún segir að hann hafi verið óvenju drjúgur með sig síð­ustu daga, og þá sé mikið sagt. Marta upp­nefnir Gísla Martein í grein­inni, kallar hann ýmist „pjakk“, „Emil í Katt­holti“ eða „prinsessu“.

„Nú ert þú bara prinsessa RÚV“

Þá segir Marta ítrekað að Gísli Marteinn ljúgi og hyggst taka hann í bak­aríið fyrir vikið. „Það kann ekki góðri lukku að stýra, að ljúga upp á gamla póli­tíska sam­starfs­fé­laga og grípa síðan aftur til ósann­inda þegar þú ert stað­inn að verki.“

„Þú bara spinnur þennan þvætt­ing af því þú heldur að það komi þér vel í fjöl­miðli“
Marta Guð­jóns­dóttir
borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks.

Marta vitnar síðan í við­tal við Gísla Martein úr þætt­inum Bak­arí­inu á Bylgj­unni þar sem hann hafi sagt að til sé vont fólk í gras­rótum allra stjórn­mála­flokka, að sögn Mörtu. Hún heldur því hins vegar fram að Gísli Marteinn sé alls ekki þess­arar skoð­unar. „Þú bara spinnur þennan þvætt­ing af því þú heldur að það komi þér vel í fjöl­miðli,“ segir Marta og heldur því fram að Gísla Marteini sé í raun bara illa við gras­rót Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Það sé vegna þess að honum hafi verið hafnað af gras­rót­inni í próf­kjöri árið 2006.

„Þú varst ein af prinsessum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og RÚV. En nú ert þú bara prinsessa RÚV. Þú varst frjáls­hyggju­maður, komst þér í mjúk­inn hjá valda­miklum sem og vel­stæðum sjálf­stæð­is­mönnum og vildir verða borg­ar­stjóri fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, keyptir ómæld gallon af bjór og tonn af pít­sum sem þú útdeildir eins og róm­verskur keis­ari - en, en, en þú tap­aðir samt í fjöl­menn­asta próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrr og síðar, fyrir gras­rót flokks­ins í Reykja­vík, árið 2006. Þess vegna er þér meinilla við þessa gras­rót.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár