Rannsakaði garð afa og ömmu í tólf ár

Garðurinn er útópía, að rækta garðinn sinn, að búa til sinn stað í heiminum, segir Bjarki Bragason lista­maður, sem hefur safnað plöntum úr garði afa síns og ömmu í tólf ár, en húsið stendur til að rífa og reisa þar raðhús.

Bjarki Bragason mætti á mínútunni 16.30 á fund Hillbillyar á Gerðar­safni í Kópavogi. Hillbilly var líka á góðum tíma, sjaldan þessu vant. Austurríska genið leggur mikið upp úr því að koma hvorki of snemma né of seint. Safnið ber á góma. Það hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá Hillbilly af mörgum ástæðum, helst út af prinsessu­brúnni og næntís orkunni. Bjarki og Hillbilly töluðu lítillega, en vits­munalega, um byggingar­stíl þessara ára. „Þetta er áhugavert tímabil í byggingar­listinni, að vera inni í byggingunni veitir manni tækifæri á að horfa til baka á póst­módernismann sem hún kemur úr. Hér eru ýmis form sem vísa aftur á bak í tímann, veglegar hurð­aumgjarðir, hringir og form sem minna á grískar hefðir og þeim er stefnt saman.“

Við erum komin hér saman í dag vegna verks Bjarka, Áform, á sýningunni Skýjaborg sem nú stendur yfir í Gerðar­safni í sýningar­stjórn Klöru Þórhalls­dóttur og Brynju Sveins­dóttur. Ásamt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár