359. spurningaþraut: Álfaprinsinn Lególas og fleiri

359. spurningaþraut: Álfaprinsinn Lególas og fleiri

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er sá karl sem horfir á oss af mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hversu margir Íslend­ingar er talið að hafi flust vestur um haf á árunum 1870-1914 og ekki snúið aftur til Íslands? Hér má skeika 2.000 manns til eða frá.

2.   Í Noregi eru ýmsir bæir og borgir, þar á meðal Stavan­ger, Tromsø og Trond­heim. Bæirnir eru hér í staf­rófs­röð sam­kvæmt norskum rit­hætti. En hver er nyrstur bæj­anna þriggja og hver er syðstur? 

3.   En hversu oft hefur Noregur unnið Eurovision söngvakeppn­ina?

4.   José Mourinho heitir einn fræg­asti fót­bolta­þjálf­ari heims­ins. Hann hefur víða farið, en í þeim lista fót­boltaliða sem hér má sjá á eftir (í staf­rófs­röð) er eitt lið sem Mourinho hefur EKKI þjálfað. Hvaða lið er það? Benfica — Chelsea — Dortmund — Inter Milan — Manchester United — Porto — Real Madrid — Totten­ham — União de Leirea.

5.   Hvaða ríki til­heyrir eyjan Korfu?

6.   Milli hvaða tveggja pláneta er aðal loft­steina­beltið í innri hluta sól­kerfis okkar?

7.   Hver orti ljóða­bálk­inn um Tímann og vatnið um miðja 20. öld?

8.   En hver skrif­aði bók­ina Um tím­ann og vatnið fyrir fáeinum árum?

9.   Hvaða ár tók Angela Merkel við emb­ætti kansl­ara Þýska­lands?

10.   Lególas heitir prins einn af álfa­kyni. Úr hvaða sagna­heimi kemur hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða söng­kona er hér á mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hin venju­lega tala yfir vest­ur­fara er 15.000. Rétt telst því vera 13.000-17.000.

2.   Trömsö er nyrstur, þá kemur Trond­heim og syðstur er Stavan­ger.

3.   Þrisvar.

4.   Dortmund.

5.   Grikk­landi.

6.   Mars og Júpíter.

7.   Steinn Steinarr.

8.   Andri Snær.

9.   2005.

10.   Tolkiens. Einnig er gefið rétt fyrir Hringa­drótt­ins­sögu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sigmund Freud sál­fræð­ingur.

Á neðri mynd­inni er Mariah Carey.

***

Hér er hlekkur á þraut­ina, sem birt­ist í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár