358. spurningaþraut: Hvar ríktu keisarar frá 1822 til 1889?

358. spurningaþraut: Hvar ríktu keisarar frá 1822 til 1889?

Gær­dags­þrautin.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er kona þessi, sú er hér að ofan sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða ríki í heimi starf­rækir flest sendi­ráð í öðrum löndum?

2.   Hvaða alþjóð­lega ham­borg­ara­keðja selur borg­ara sem kall­ast Whopper?

3.   Jóannes Eides­gaard heldur upp á sjö­tugs­af­mæli sitt í dag. Hann var kenn­ari sem lagði fyrir stjórn­mál í landi sínu, varð þing­maður, fjár­mála­ráð­herra og um skeið for­sæt­is­ráð­herra, þótt emb­ætt­is­tit­ill hans hafi raunar verið annar. Í hvaða landi starf­aði Eides­gaard?

4.   Við hvað starf­aði hins vegar amma Jóns Odds og Jóns Bjarna?

5.   Hvað hét upp­á­halds­hundur Adolfs Hitlers, að minnsta kosti sein­ustu árin?

6.   Frægur hvítur hundur af teg­und­unni „fox terrier“ var nefndur Milou í heima­landi sínu en á íslensku hefur hvutt­inn hlotið allt öðru­vísi nafn. Hvað er hann kall­aður hér­lendis?

7.   Ríki eitt, stórt og fjöl­mennt, tók sér sjálf­stæði frá evr­ópsku nýlendu­veldi árið 1822 og ný þjóð­höfð­ingi tók sér keis­ara­nafn. Sonur hans tók svo við sem keis­ari og ríkti til árs­ins 1889 að honum var steypt af stóli og for­seti tók við. Hvað heitir þetta fyrr­ver­andi keis­ara­dæmi?

8.   Hversu stór hluti af Suð­ur­skauts­land­inu er án íshellu? Hér má muna einu pró­senti til eða frá.

9.   Hvað hét hinn ítalski höf­undur skáld­sög­unnar Nafns rós­ar­innar?

10.     Hvaða dýr gefur af sér angóra-ull?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi fjörður?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kína.

2.   Burger King.

3.   Færeyjum.

4.   Hún var erind­reki.

5.   Blondie.

6.   Tobbi, hundur Tinna.

7.   Brasilía.

8.   Tvö pró­sent. Rétt telst því vera 1-3 pró­sent.

9.   Eco.

10.   Kanínur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.   Wallis Simpson, síðar her­toga­ynja af Windsor.

2.   Stein­gríms­fjörður.

***

Gær­dags­þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár