357. spurningaþraut: Hvar fór fram þessi einkennilega útför?

357. spurningaþraut: Hvar fór fram þessi einkennilega útför?

Hlekkur á þraut gærdagzins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða kvik­mynd kemur við sögu sú ein­kenni­lega útför sem sést á skjá­skot­inu hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   St. Pét­urs­borg stendur í óshólmum fljóts nokk­urs. Hvað heitir það fljót?

2.   Hver stofn­aði borg­ina?

3.   Skipt var um nafn á borg­inni þann 1. sept­em­ber 1914. Hvað var hið nýja nafn hennar?

4.   „Shahadah“ er hann kall­aður, eiður sá sem múslimar hafa gjarnan á vör­unum, og er ein af þeim fimm stoðum sem íslams­trú hvílir á. Enginn getur talist múslimi nema hann geti farið með eið­inn af ein­lægu hjarta og heilum hug. En hver er eið­ur­inn?

5.   Hver var kon­ungur í Galíleu á síð­ari hluta ævi Jesúa frá Nasaret?

6.   Sá kóngur er frægur fyrir að hafa látið háls­höggva Jóhannes skír­ara að beiðni dans­stúlku einnar. Hvað hét hún?

7.   Ein fræg­asta ball­ería 20. aldar fædd­ist árið 1919 á Englandi og var í þann veg­inn að setj­ast í helgan stein um fer­tugt. Þá flúði ungur ball­et­dans­ari frá Sov­ét­ríkj­unum vestur á bóg­inn og ball­er­ínan okkar stóðst ekki mátið að dansa við hann, svo hún hætti ekki að fullu að dansa fyrr en hún var komin undir sex­tugt. Hvað hét hún?

8.   En hvað hét dans­ar­inn ungi frá Sov­ét­ríkj­unum?

9.   Hver var frægur fyrir að leita að Livingstone?

10.   „Gallus gallus“ er lat­neska fræði­heitið á fugli einum sem lifir villtur um Suð­austur-Asíu og Indland. Afkom­andi þess fugls hefur verið tam­inn fyrir löngu og þykir nú eitt gagn­leg­asta hús­dýr manns­ins. Hvað heitir „gallus gallus domesticus“ á íslensku?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er ungi mað­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Neva.

2.   Pétur mikli keis­ari.

3.   Petr­ograd.

4.   Í hinni form­legu mynd sinni er eið­ur­inn nokkurn veg­inn svona: „Ég votta að eng­inn á skilið lotn­ingu nema guð, og ég votta að Múhameð er sendi­boði guðs.“ — En aðeins styttri útgáfur telj­ast hér réttar, til dæmis „Enginn er guð nema Allah, og Múhameð er spá­maður hans.“ Merk­ingin verður þó að vera rétt og bæði guð (Allah) og Múhameð vera nefndir til sögu.

5.   Heródes.

6.   Salóme.

7.   Margot Fonteyn.

8.   Rudolf Nureév.

9.   Stanley.

10.   Hænsni.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Aldrei þessu vant er ekki nauð­syn­legt að vita nafnið, sjálft nafnið, á kvik­mynd­inni sem spurt var í fyrri auka­spurn­ingu. Það dugar að vita að þetta var fram­haldið af hinni vin­sælu tón­list­ar­mynd Stuð­manna og fleiri, Með allt á hreinu. En myndin hét Í takt við tím­ann.

Á seinni mynd­inni hjá sjá David Bowie. Sjá enn­fremur hér!

***

Hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár