356. spurningaþraut: Hvað hét Svíinn, hverja studdi Byron, og svo framvegis

356. spurningaþraut: Hvað hét Svíinn, hverja studdi Byron, og svo framvegis

Hérna er sko þrautin síðan í gær.

***

Auka­spurn­ingar eru tvær, og sú fyrri á við mynd­ina hér að ofan. Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skot þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað hét grín­flokk­ur­inn sem þeir til­heyrðu Graham Chapman, John Cleese, Eric Idle, Terry Jones og Michael Palin?

2.   Í upp­taln­ing­una hér að ofan vantar raunar einn með­lim hóps­ins. Hver er sá?

3.   „Bíbí og blaka ...“ Hverjar kvaka?

4.   Hvað hét sænski vík­ing­ur­inn sem var einn hinn fyrstu sem sigldu til Íslands sam­kvæmt hinum elstu heim­ildum?

5.   Í frægri bók, sem síðan hefur verið teikni­mynd eftir, leik­sýn­ingar og fleira, þar kemur við sögu dýrið Shere Khan, sem er heldur vonsku­legt. En af hvaða dýra­teg­und er Shere Khan?

6.   Breska ljóð­skáldið Byron lávarður fór í byrjun 19. aldar til að taka þátt í frels­is­stríði ákveð­innar þjóðar. Hvaða þjóð var það?

7.   Í hvaða landi heitir Lissabon?

8.   Eftir hvaða bæj­ar­fé­lagi nefndi BlazRoca plötu sem út kom árið 2010? 

9.   Nadine Gordimer fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum árið 1991 fyrir bækur eins og Heimur feigrar stéttar og Sögu sonar síns — sem út hafa komið á íslensku. Frá hvaða landi kom Gordimer?

10.   Hvaða fót­boltalið varð Eng­lands­meist­ari karla í fyrra?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Monthy Python.

2.   Terry Gilliam.

3.   Álft­irnar.

4.   Garðar Svav­ar­son.

5.   Tígris­dýr.

6.   Grikkir.

7.    Portúgal.

8.   Kópavogi.

9.   Suður-Afríka.

10.   Liverpool.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið á efri mynd­inni er úr Sódómu Reykja­vík.

Konan á neðri mynd­inni nefnd­ist Catherine eða Kate Midd­leton þegar hún fædd­ist en kall­ast lík­lega núna Catherine Windsor form­lega séð og her­toga­ynja af Cambridge.

***

Og hér er sko hlekk­ur­inn sko á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár