355. spurningaþraut: Mbappé, Hitler, Armstrong-Jones, Nanna Birk Larsen

355. spurningaþraut: Mbappé, Hitler, Armstrong-Jones, Nanna Birk Larsen

Hér er hlekkur á spurn­inga­þraut gær­dags­ins!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan, sem hér sést milli sona sinna tveggja árið 1968, varð það ár fyrst kvenna til að gegna ákveðnu ábyrgð­ar­starfi. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Með hvaða fót­boltaliði leikur franski snill­ing­ur­inn Kylian Mbappé?

2.   Anthony Arm­strong-Jones hét ljós­mynd­ari einn, breskur að ætt. Hann þótti bæri­legur í sínu fagi, en er þó langtum þekkt­ari fyrir annað. Hvað er það?

3.   Ákveðinn stjórn­mála­flokkur notar fíl sem tákn sitt. Hvaða flokkur er það?

4.   Í hvaða hér­aði í Kanada hafa stundum heyrst raddir um að hér­aðið ætti að taka sér sjálf­stæði?

5.   Hverjir geta fengið Fjöru­verð­launin svo­nefndu í ýmsum flokkum bók­mennta?

6.   Hin 19 ára gamla Nanna Birk Larsen fannst látin í nágrenni Kaup­manna­hafnar í upp­hafi árs 2007. Hún hafði verið myrt. Þessi lík­fundur varð upp­hafið að hverju?

7.   Í hvaða landi er upp­runi leiks­ins „go“?

8.   Hver stofn­aði stjórn­mála­flokk­inn Þjóðvaka á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar?

9.   Hvar á Suð­ur­landi var bisk­ups­stóll þangað til um árið 1800?

10.   Hvað mistókst Adolf Hitler bæði 1907 og 1908?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá bresku leik­ar­ana Richard Harris og Michael Gambon í sama hlut­verk­inu. Hvaða hlut­verk var það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Paris Saint Germain. Það dugar reyndar að nefna Paris.

2.   Hann var kvæntur Margréti prinsessu á Bret­landi.

3.   Repúblikana­flokk­ur­inn í Banda­ríkj­unum.

4.   Quebec.

5.   Konur.

6.   Hinum róm­uðu glæpa­þátt­unum For­brydel­sen eða Glæpnum.

7.   Kína.

8.   Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir.

9.   Skálholt.

10.   Að kom­ast í Listaka­dem­í­una í Vín­ar­borg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni hét Margrét Ind­riða­dóttir og varð frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins fyrst kvenna.

Á neðri mynd­inni eru þeir Harris og Gambon báðir í hluverki galdra­meist­ar­ans Dumbledore í Harry Potter-mynd­unum.

***

Og hér er hlekkur á þraut númer 354!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár