354. spurningaþraut: Ásta S. Guðbjartsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson og fleiri

354. spurningaþraut: Ásta S. Guðbjartsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson og fleiri

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Undir hvaða nafni þekkjum við Ástu S. Guð­bjarts­dóttur best?

2.   Árið 1937 hvarf frægur flug­kappi á Kyrra­hafi og hefur hvarfið síðan orðið til­efni ótal rann­sókna, bóka, sjón­varps- og útvarps­þátta. Hvað hét flug­kapp­inn?

3.   Í hvaða landi er Tel Aviv?

4.   Hvað hét söng­kona Spil­verks þjóð­anna?

5.   Tón­list­ar­maður einn hét Jóhann G. Jóhanns­son. Hann var af hippa­kyn­slóð­inni og var meðal ann­ars í frægri hljóm­sveit sem hér er spurt um. Framan af voru ýmsir í hljóm­sveit­inni en kunn­asta útgáfa hennar var tríó sem Jóhann, Ólafur Garð­ars­son og Finnur Torfi skip­uðu. Hvað nefnd­ist þetta róm­aða tríó?

6.   Og hvað heitir fræg­asta lag Jóhanns G. Jóhanns­sonar, sem kom út á plöt­unni Langspil árið 1974?

7.  Annar Jóhann G. Jóhanns­son er líka tón­list­ar­maður. Hann hefur feng­ist við sitt af hverju en er kannski kunn­astur fyrir starf sitt í leik­hús­inu. Jóhann gerði meðal ann­ars tón­list við texta Þor­valdar Þor­steins­sonar í ævin­týra­legum söng­leik árið 1994, þar sem dvergar komu heil­mikið við sögu. Hvað nefnd­ist söng­leik­ur­inn?

8.   Þriðji Jóhann G. Jóhanns­son er líka tón­list­ar­maður. Hann var í ýmsum hljóm­sveitum, svo sem rokk­hljóm­sveit­inni HAM um tíma, en einnig í hljóm­sveit nokk­urra org­el­leik­ara (og fáeinna ann­arra mús­í­k­anta). Hvað hét sú hljóm­sveit?

9.   Þessi Jóhann G. Jóhanns­son náði miklum frama sem kvik­mynda­tón­skáld og var til­nefndur til Ósk­arsverð­launa og fékk Golden Globe verð­laun fyrir tón­list sína í mynd frá 2014. Hana gerði leik­stjór­inn James Marsh. Hvað hét myndin?

10.   Sú mynd fjall­aði um ævi karls nokk­urs. Hver var það?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Hér að neðan má sjá leik­ara einn sem hefur und­an­förnu leikið mest í sjón­varpi og bíó­myndum, og reyndar ekki aðeins á Íslandi. Nú síð­ast sást hann í ser­í­unni Systra­bönd. Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.    Ástu Sóllilju, dóttur Bjarts í Sum­ar­húsum eftir Halldór Laxness.

2.   Amelia Aerhart. Hér dugar ann­að­hvort nafnið.

3.   Ísrael.

4.   Diddú, Sigrún Hjálmtýs­dóttir.

5.   Óðmenn.

6.   Don't Try To Fool Me. (Sjá hér.)

7.   Skila­boða­skjóðan.

8.   Apparat Organ Quartet.

9.   A Theory of Everyt­hing.

10.   Hún fjallar um ævi eðl­is­fræð­ings­ins Stephen Hawking.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Magritte mál­aði mál­verið hér efst.

Á neðri mynd­inni er Jóhann G. Jóhanns­son leik­ari.

***

Og hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár