353. spurningaþraut: Tónlistarverðlaun, glæpasería, lóan, Kalmarsambandið

353. spurningaþraut: Tónlistarverðlaun, glæpasería, lóan, Kalmarsambandið

Hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan? Eft­ir­nafnið dugar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Lóan er komin að kveða burt snjó­inn. Hver orti kvæði það er svo hófst?

2.   Hvaða tón­list­ar­maður fékk á dög­unum fern af hinum svo­nefndu Hlust­enda­verð­launum, þar á meðal bæði fyrir plötu árs­ins og lag árs­ins?

3.   Hvað heitir plata árs­ins sam­kvæmt Hlust­enda­verð­laun­unum?

4.   Spennusería sem Sjónvarp sím­ans frum­sýndi um pásk­ana fjallar um leynd­ar­mál sem þrjár æsku­vin­konur eiga sér. Hvað heitir sería þessi?

5.   Og hver er leik­stjóri ser­í­unnar?

6.   Hvaða þjóð­höfð­ingi á Norð­ur­löndum er helst tengdur hinu svo­nefnda Kal­mar­sam­bandi og kom því í raun á lagg­irnar?

7.   Ef við lítum á Reykja­nes sem stíg­vél, þá er einn þétt­býl­iskjarni nán­ast alveg úti á tá stíg­vél­is­ins. Hvað nefnd­ist hann?

8.  En undir stíg­vél­inu — fram­ar­lega — er hins vegar annað þorp. Hvað heitir það?

9.   Hver var for­seti Banda­ríkj­anna á undan Ronald Reagan?

10.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Zagreb?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá Emily Blunt í hlut­verki sínu í ákveð­inni kvik­mynd frá 2015 sem teng­ist Íslandi með ákveðnum hætti. Hvað heitir myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Páll Ólafsson.

2.   Bríet.

3.   Kveðja, Bríet.

4.   Systra­bönd.

5.   Silja Hauks­dóttir.

6.   Margrét.

7.   Garður.

8.   Sand­gerði.

9.   Jimmy Carter.

10.   Króatíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni er ann­að­hvort Wilbur eða Orville Wright, sem sé annar bræðr­anna sem fyrstir manna flugu vél­flugu. Myndin er tekin í til­rauna­flugi.

Á neðri mynd­inni er Blunt í hlut­verki sínu í mynd­inni Sicario sem Jóhann G. Jóhanns­son samdi við tón­list.

***

Og aftur hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár