352. spurningaþraut: Sveiflukóngur, Beckett, Kasparov, Nyerere og fleiri

352. spurningaþraut: Sveiflukóngur, Beckett, Kasparov, Nyerere og fleiri

Hlekkur á þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Í dag er 13. apríl og á þessum degi fyrir 51 ári — eða árið 1970 — varð spreng­ing í geim­fari úti í geimnum. Þegar súr­efn­iskútur sprakk rifn­aði góður hluti af hlíf utan af geim­far­inu eins og sjá má á mynd­inni. Hvað nefnd­ist þetta geim­far?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða stjörnu­merki dýra­hrings­ins er við lýði í dag?

2.   Karl nokkur, sem fæddur er á þessum degi, gengur gjarnan undir nafn­inu „sveiflu­kóng­ur­inn“. Hvað heitir hann fullu nafni?

3.   Á þessum degi átti líka afmæli ítölsk kona af frægri og jafn­vel alræmdri valda­ætt. Hún fædd­ist árið 1519 og gift­ist til Frakk­lands þar sem hún varð drottn­ing Hinriks 2. Frakka­kóngs og móðir þriggja kónga og einnar drottn­ingar. Hún hét Katrín en af hvaða ítölsku valda­ætt var hún?

4.   Garrí Kasparov var heims­meist­ari í skák lengi vel á síð­ustu öld og tefldi framan af undir merkjum Sov­ét­ríkj­anna. En í hvaða Sov­étlýð­veldi fædd­ist hann þann 13. apríl árið 1963?

5.   Banda­ríkja­for­seti einn var fæddur 13. apríl 1743. Hann hét Thomas Jeffer­son og þykir mik­ill merk­is­maður í banda­rískri sögu og skrif­aði margt merki­legt. Síðustu ára­tugi hefur þó ákveð­inn hlutur úr einka­lífi hans vakið ekki minni athygli. Hvað er það?

6.   Einn af mest áber­andi leið­togum Afríku eftir nýlendu­tím­ann var Julius Nyerere. Hann fædd­ist 13. apríl 1922 og árið 1964 varð hann for­seti í splunku­nýju ríki, og stýrði því svo við að mörgu leyti ágætan orðstír til 1985, þótt ein­ræð­is­hneigð hans væri óþarf­lega mikil. En hvað hét ríkið sem Nyerere stjórn­aði?

7.   Svo ein­kenni­lega vill til að tveir menn fæddir á Írlandi þann 13. apríl hafa báðir fengið Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Sá eldri fædd­ist 1906 og er og verður frægastur fyrir leik­rit þar sem tveir menn bíða árang­urs­laust eftir þeim þriðja, sem aldrei kemur. Höf­und­ur­inn heitir Beckett en hvað heitir leik­ritið?

8.   Hinn Írinn fædd­ist 13. apríl 1939 og var ljóð­skáld. Hann hafði miklar mætur á hinu fornenska kvæði Bjólfs­kviðu og þegar hann kom einu sinni í heim­sókn hingað til lands sagði hann að „Ísland er fyrir mér angi af þeirri sigl­inga- og víga­ferla­menn­ingu sem Bjólfs­kviða lýsir“. Hvað hét þetta skáld?

9.   Þann 13. apríl árið 1203 varð Guð­mundur Arason biskup á Hólum. Hvað var hann yfir­leitt alltaf kall­aður?

10.   Og þann 13. apríl 1565 var stað­festur nýr laga­bálkur um sið­ferð­is­brot á Íslandi og voru margir líf­látnir sam­kvæmt honum næstu ára­tugi og aldir. Hvað kall­ast þessi laga­bálkur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Enn eitt afmæl­is­barn þessa dags fædd­ist árið 1866. Árið 1969 var gerð kvik­mynd um ævi hans og vinar hans og á mynd­inni hér að neðan sjást leik­ar­arnir sem fóru með hlut­verk þeirra: Robert Redford og Paul Newman. Newman er til hægri. Hann lék þetta afmæl­is­barn, sem hét ...?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hrút­ur­inn.

2.   Geir­mundur Val­týs­son.

3.   Medici.

4.   Aserbædjan.

5.   Hann hélt við og átti börn með svartri þræla­stúlku.

6.   Tansaníu.

7.   Beðið eftir Godot.

8.   Heaney.

9.   Guð­mundur góði.

10.   Stóri­dómur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Geim­farið hét Apollo 13.

Maðurinn hét Butch Cassidy.

***

Og hér er hlekk­ur­inn á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár