351. spurningaþraut: Rangifer tarandus, Benali, Saint-Exupéry, Timbúktú?

351. spurningaþraut: Rangifer tarandus, Benali, Saint-Exupéry, Timbúktú?

Þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver var for­sæt­is­ráð­herra Íslands þegar síð­ari heims­styrj­öldin hófst?

2.   En hver var for­sæt­is­ráð­herra þegar styrj­öld­inni lauk?

3.   Fyrir hvaða flokk sat verka­lýðs­leið­tog­inn Aðal­heiður Bjarn­freðs­dóttir á þingi 1987-1991?

4.   Hvað er stærst í frá­sögur fært um fjallið Denali?

5.   Rangifer tarandus er lat­neska nafnið á dýra­teg­und sem lifir villt á Íslandi. Tegundin var þó flutt inn vís­vit­andi. Hvað kall­ast dýr þetta á íslensku?

6.   Hver er þriðja stærsta borgin í Svíþjóð á eftir Stokk­hólmi og Gauta­borg?

7.   Hver hefur síð­ustu árin haldið úti uppi­stand­inu Ára­móta­skopið um hver ára­mót?

8.   Hvaða frægu bók skrif­aði Antoine de Saint-Exupéry?

9.   Hver lék stærsta kven­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Titantic 1997?

10.  Í hvaða ríki er borgin Timbúktú?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Myndin hér að neðan sýnir mark sem skorað var á 43. mín­útu í fót­bolta­leik þann 7. júlí 1974. Hvít­klæddi leik­mað­ur­inn vinstra megin sneri af sér varn­ar­mann og laum­aði bolt­anum í netið af harð­fylgi. Hann byrj­aði að fagna löngu áður en bolt­inn var kom­inn yfir lín­una, enda ekki bein­línis óvanur því að skora mörk. Hvað hét þessi marka­skor­ari?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hermann Jónasson.

2.   Ólafur Thors.

3.   Borg­ara­flokk­inn.

4.   Hæsta fjallið í Norður-Ameríku. Fjallið var um tíma nefnt Mount McKinley en sá nafn­arugl­ingur er þó ekki það „stærsta“ sem um fjall þetta er sagt.

5.   Hreindýr.

6.   Málmey.

7.   Ari Eldjárn.

8.   Litla prins­inn.

9.   Kate Winslet.

10.   Malí.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er skáld­konan Steinunn Sig­urð­ar­dóttir.

Rétt svar við seinni auka­spurn­ingu er Gerd Müller. Málið snýst um sig­ur­mark hans í úrslita­leik HM 1974 milli Vestur-Þjóð­verja og Hol­lend­inga.

***

Þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár