Páskaþraut nr. 2

Páskaþraut nr. 2

Fyrri páskaþrautin birtist hér.

***

En venjuleg þraut dagsins er hins vegar hér.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Margir lista­menn hafa spreytt sig á að lýsa atburðum páska­vik­unnar. Á mynd­inni hér að ofan er einn þeirra. Hver er sá?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Atburð­irnir, sem kristnir menn minn­ast á sinni páska­há­tíð, gerð­ust þegar Gyðingar voru að halda upp á sína gömlu páska­há­tíð. Hvers voru Gyðingar að minn­ast á páska­há­tíð­inni — og minn­ast þess raunar enn í dag?

2.   Æðsti prestur Gyðinga hafði þungar áhyggjur af fram­ferði Jesúa á páska­há­tíð­inni. Hann er nefndur á nafn í þremur guð­spjöllum af fjórum. Hvað hét hann?

3.   „Þér hafið gjört það að ræn­ingja­bæli,“ segir Jesúa frá Nasaret reiður og gramur á ákveðnum stað í Jer­úsalem. Hvaða „ræn­ingja­bæli“ er hann að tala um?

4.   Að lok­inni síð­ustu kvöld­mál­tíð­inni gengu Jesúa og læri­sveinar hans út fyrir borg­ar­múra Jer­úsalem. Þeir námu staðar á vin­sælum stað við rætur Olíu­fjalls­ins. Hvað hét sá staður?

5.   Þegar Jesúa var hand­tek­inn sner­ist einn af mönnum hans til varnar og brá sverði gegn einum af þjónum æðsta prests­ins, áður en Jesúa náði að stöðva hann. Hvaða óskunda gerði þessi læri­sveinn með sverði sínu?

6.   Eftir að Jesúa var hand­tek­inn fóru læri­sveinar hans í felur og einn þeirra afneit­aði því þrisvar að hafa verið í hópi þeirra. Hvaða læri­sveinn var það?

7.   Frá því er greint að róm­verski land­stjór­inn hafi haft þann sið að láta einn fanga lausan á páska­há­tíð­inni, sam­kvæmt ósk almenn­ings í Jer­úsalem, og land­stjór­inn bjóst greini­lega við að Gyðingar myndu fara fram á að fá Jesúa leystan úr haldi. En í stað­inn báðu Gyðingar um að annar fangi Rómverja yrði lát­inn laus. Hvað hét hann?

8.   Samkvæmt guð­spjöllum Markúsar og Matteusar var það eina sem Jesúa sagði á kross­inum: „Elí, Elí, lama sabakt­aní!“ Hvað þýðir það?

9.   Hvað hét mað­ur­inn sem gekk fyrir róm­verska land­stjór­ann, bað um að fá að taka lík­ama Jesúa niður af kross­inum og búa til greftr­unar?

10.   Í hinum ýmsu guð­spjöllum eru nefndar á nafn fjórar konur sem hafi komið fyrstar að opinni gröf Jesúa að morgni páska­dags, auk þess sem guð­spjalla­mað­ur­inn Lúkas bætir við: „Og hinar sem voru með þeim.“ Aðeins ein kona er nefnd í öllum fjórum guð­spjöll­unum. Hver var hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni að neðan leið­beinir leik­stjóri einn Jesúa sínum um hvernig hann skuli túlka pínu og kvöld Jesúa. Leik­ar­inn heitir Jim Caviezel en hvað heitir myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Flótta eða burt­farar frá Egifta­landi.

2.   Kaíafas.

3.   Musterið.

4.   Get­semane.

5.   Sneið af þjón­inum eyra.

6.   Pétur.

7.   Barabbas.

8.  „Guð minn, guð minn, hví hefur þú yfir­gefið mig?“

9.   Jósef frá Arimateu. Jósef dugar reyndar alveg.

10.   María Magda­lena.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hall­grímur Pét­urs­son.

Mynd Mel Gibsons heitir Passion of the Christ.

***

Hér er svo hlekkur á „venjulegu“ þrautina sem birtist í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár