349. spurningaþraut: Tvær kvikmyndir, ein höfuðborg, einn stríðsleiðtogi, og það er bara byrjunin

349. spurningaþraut: Tvær kvikmyndir, ein höfuðborg, einn stríðsleiðtogi, og það er bara byrjunin

Hæ. Hér er fyrst hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni að ofan má sjá dýrið paraceratherium, stærsta land­spen­dýr sem vitað er um í sög­unni, en dýrið var á dögum fyrir 25-30 millj­ónum ára. Hver er nán­asti ætt­ingi dýrs­ins sem enn skrimtir?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Buenos Aires?

2.   Í ágúst 1941 kom mik­ill stríðs­leið­togi í heim­sókn til Íslands. Hver var sá?

3.   Þessi ágæti maður staldr­aði að vísu stutt við, en hann var að koma af fundi með öðrum leið­toga, sem þá átti að vísu ekki í neinu stríði. Hver var hann eða hún?

4.   Banda­rísk bíó­mynd nefn­ist The Trial of the Chicago 7 og fjallar um menn sem dregnir voru fyrir dóm fyrir meinta aðild sína að óeirðum sem urðu í Chicago árið 1968 þegar flokks­þing Demókrata stóð þar yfir. Einna fremstur í flokki þeirra var hippa­skör­ung­ur­inn Abbie Hoffmann. Leik­ar­inn, sem fer með hlut­verk hans, er frægur fyrir hlut­verk í myndum af allt öðru tagi, en hann hefur fengið heil­mikið lof fyrir hlut­verk Hoffmans og til­nefndur til Ósk­arsverð­launa. Hvað heitir leik­ar­inn?

5.   Hvað hét eig­in­kona Ágústusar Róm­ar­keis­ara, sem sumir telja að hafi ráðið mjög miklu bak við tjöldin og otað tota skyld­menna sinna mjög við hirð­ina?

6.   Hversu mörg eru íslensku kjör­dæmin?

7.   Hún fædd­ist árið 1958 í Belgíu. Reyndar er hún þýsk en faðir hennar var starfs­maður Evr­ópu­sam­bands­ins (hvað sem það hét nú þá) í Brussel. Hún lærði lækn­is­fræði í Þýska­landi, var sökuð um rit­stuld í dokt­ors­rit­gerð sinni en stóð þær ásak­anir af sér. Svo fór hún út í póli­tík og er nú aftur komin til Brussel. Hvað heitir hún?

8.   Hversu mörg fjöll á Íslandi bera nafnið Fjallið eina?

9.   Hver lét aðal­hlut­verkið í mynd­inni Sophie's Choice?

10.   Finnur Jónsson hét íslensku­fræð­ingur einn og sér­fræð­ingur í fornum bók­menntum sem and­að­ist 1934. Hann aðhyllt­ist svo­kall­aða sagn­festu­kenn­ingu varð­andi Íslend­inga­sög­urnar, en í henni fólst að sög­urnar væru meira og minna byggðar á traustum munn­legum heim­ildum og því „sannar“ í stórum dráttum. And­stæð­ingar Finns og félaga töldu hins vegar að sög­urnar væru meira og minna skáld­skapur sem byggði að litlu leyti á munn­mæla­sögum. Þær hefðu verið samdar á bók af ákveðnum höf­undum, sem létu nafns síns að vísu ekki getið. Hvað nefnd­ist sú kenn­ing, sem gekk í móti sagn­festu­kenn­ing­unni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Dýrið á mynd­inni hér að neðan er sprell­lif­andi. Hvaða dýr er þetta?

 ***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Argent­ínu.

2.   Churchill.

3.   Franklin D. Roosevelt.

4.   Sasha Baron Cohen (öðru nafni Borat, Ali G. o.fl.)

5.   Livia.

6.   Sex.

7.   Ursula von der Leyen.

8.   Þrjú.

9.   Meryl Streep.

10.   Bók­festu­kenn­ingin.   

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Paraceratherium er af sömu ætt og nas­hyrn­ingar.

Dýrið á neðri mynd­inni er rauð­panda, einnig nefnd katt­björn.

***

Og. Er. Hlekkur. Þrautina. Gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár