348. spurningaþraut: Hvaða Íslendingasaga er kennd við konu?

348. spurningaþraut: Hvaða Íslendingasaga er kennd við konu?

347. þraut, hér leyn­ist hún.

***

Auka­spurn­ing, fyrri:

Hvaða hljóm­sveit treður upp á skjá­skot­inu sem birt­ist hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi fædd­ist málar­inn Pablo Picasso?

2.   Bot­vinnik hét maður, hann var heims­meist­ari í skák árum saman. Í hvaða ríki var hann lengst af heim­il­is­fastur?

3.   Í hvaða hljóm­sveit var söng­konan Ragn­hildur Gísla­dóttir þegar hún sló fyrst í gegn?

4.   Hvar gaus á Íslandi næst á undan gos­inu í Fagra­dals­fjalli eða Geld­inga­dölum?

5.   Hver er vin­sælasta sjón­varps­frétta­stöð Banda­ríkj­anna?

6.   Árið 1993 dó 100 ára gam­all lista­maður á Íslandi sem Finnur hét Jónsson. Hvaða list­grein stund­aði hann?

7.   Í hvaða hér­aði í Palest­ínu ólst Jesúa frá Nasaret upp?

8.   Hver vildi martíní-kokk­teil­inn sinn „shaken not stir­ren“?

9.   Hvaða stjórn­mála­flokkur tengd­ist dag­blað­inu Tímanum ára­tugum saman?

10.   Íslend­inga­sög­urnar eru mjög margar nefndar eftir aðal­per­són­unum. Kven­manns­nafn kemur aðeins fyrir í titli einnar af hinum eig­in­legu Íslend­inga­sögum, og sú er vissu­lega ekki ein af þeim allra þekkt­ustu. Í sög­unni koma við sögu bræður tveir, sem eru kenndir við mömmu sína og sagan líka. Hvað heitir mamman?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar er að ger­ast á þeirri mynd, sem hér sést hluti af?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Á Spáni.

2.   Í Sov­ét­ríkj­unum.

3.   Hún var í Lummunum.

4.   Holu­hrauni.

5.   Fox News.

6.   Hann var mál­ari.

7.   Í Galíleu.

8.   James Bond.

9.   Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

10.   Droplaug. Sagan heitir Drop­laug­ar­sona­saga.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá söngv­ara og trommu­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar Purrkur Pilnik.

Á neðri mynd­inni eru Japanir að gef­ast upp fyrir Banda­ríkja­mönnum og fleiri 2. sept­em­ber 1945. Athöfnin fór fram í orr­ustu­skip­inu Missouri en nóg er að nefna upp­gjöf Japana.

***

Og svo þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár