347. spurningaþraut: Í hvaða landi er ræktað mest af kartöflum?

347. spurningaþraut: Í hvaða landi er ræktað mest af kartöflum?

Hérna er hann, hlekk­ur­inn á þraut­ina síðan í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá leikkon­una Virginiu Cherrill. Hver er með henni á mynd­inni, þó hann eða hún sjá­ist ekki á þessu skjá­skoti?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Þegar til­tekin per­sóna ferð­ast um í flug­vél er sú flug­vél kölluð Air Force One. Hver er þessi per­sóna?

2.   Grikki nokkur sem uppi var rúm­lega 500 árum fyrir Krists burð er frægur fyrir safn skemmti­legra dæmi­sagna. Hvað hét Grikki þessi?

3.   Í dæmisögu, sem gjarnan er kennd við Grikkj­ann fyrr­nefnda, þar segir frá því að fjall eitt „tók jóð­sótt“ — það er, það fékk hríðir eins og barns­haf­andi konur fá — en þá fædd­ist ... hvað?

4.   Náinn frænd­fugl álftar bjó um tíma á Tjörn­inni í Reykja­vík. Það voru borg­ar­yf­ir­völd í Hamborg sem gáfu Reyk­vík­ingum nokkra fugla af þess­ari teg­und. En þeim lynti illa við álft­irnar sem fyrir fóru um Tjörnina og fækk­aði smátt og smátt. Síðasti fugl­inn af þess­ari teg­und hvarf af Tjörn­inni 1977. Hvaða fuglar voru þetta?

5.   Í hvaða landi — sem reyndar er ekki til í raun og veru — heitir höf­uð­borgin King's Landing?

6.   Hvað heitir stærsta eyjan út af Reykja­nesi?

7.   Hvaða skip voru kölluð U-bátar?

8.   Hvað hét for­stjóri og eig­andi WOW Air?

9.   Í hvaða landi er mest ræktað af kart­öflum?

10.   Hvað heitir ferjan sem siglir milli Seyð­is­fjarðar og ýmissa hafna á Norð­ur­löndum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan er sjálf­stætt ríki eitt. Það er kennt við gamlan kóng. Hvað heitir ríkið?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Forseti Banda­ríkj­anna.

2.   Esóp.

3.   Lítil mús.

4.   Hnúðsvanur.

Hnúðsvanir heita eftir mynd­ar­legum hnúð milli augn­anna.

5.   Westeros.

6.   Eldey.

7.   Þýskir kaf­bátar.

8.   Skúli Mogensen.

9.   Kína.

10.   Norræna.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Sú fyrri um leikkon­una:

Blóma­sölu­stúlkan og Chapliní mynd frá 1931.

Það er Charlie Chaplin sem er með Cherrill á mynd­inni, sem er úr bíó-mynd hans, Borg­ar­ljós eða City Lights.

Salómons­eyjareru sam­tals eins og einn fjórði hluti Íslands en þar búa 670 þús­und manns.

Og ríkið á neðri mynd­inni heitir Salómons-eyjar og er í Kyrra­haf­inu.

***

Og hér er hlekk­ur­inn á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár