346. spurningaþraut: Partur af hvaða stríði var orrustan um Moskvu?

346. spurningaþraut: Partur af hvaða stríði var orrustan um Moskvu?

Þrautin, sem í gær var ný, er nú þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi er nú varla fyrir unga fólkið, en fyrir 50 árum eða svo var gef­inn út fjöldi bóka hér á landi um hinn unga og knáa pilt á mynd­inni hér að ofan. Hann flýgur gjarnan um á „rann­sókn­ar­stof­unni fljúg­andi“ (sem sést í bak­grunn­inum) og lendir í ótal ævin­týra­legum ævin­týrum. Hvað heitir pilt­ur­inn sem gaf bók­unum og bóka­flokknum nafn sitt?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvar var hin forna Hnappa­dals­sýsla?

2.   Guð­mundur Ein­ars­son, Kolbrún Jóns­dóttir, Kristín S. Kvaran og Stefán Bene­dikts­son voru um eitt skeið þing­flokkur ... hvaða flokks?

3.   Kona ein fædd­ist í banda­ríska bænum Chicago árið 1964. Faðir hennar starf­aði við vatns­veit­una í bænum, móðir hennar var lengst af hús­móðir. Hún á einn bróður, sá var körfu­bolta­maður á yngri árum en síðar þjálf­ari. Konan komst í sviðs­ljósið 2008 og hefur verið þar síðan, þótt hún hafi oft gefið til kynna að henni sé ekki vel við það sviðs­ljós. Hvað heitir konan?

4.   „Í dögun sefur speg­ill hafs­ins, / kjölur býr til sár. / Skut­ull­inn bíður komu hvals­ins, / klýfur loftið kaldur nár.“ Hver orti svo?

5.   Hvað heitir stærsta eyjan út af Aust­fjörðum?

6.   Hvar tíðkast það sem kallað hefur verið hinu óvirðu­lega nafni „hálf­tími hálf­vit­anna“?

7.   Í des­em­ber árið 1863 var háð orr­usta við Moskvu, sem var hluti af blóð­ugu stríði sem þá hafði staðið í tvö ár. Orrustan við Moskvu var reyndar ekki mjög grimmi­leg, þetta voru skærur um brú yfir á sem fellur um Moskvu og eftir að þeim lauk mun ekki hafa verið barist á þessum slóðum, þótt stríðið stæði í tvö ár enn með sívax­andi mann­falli. En partur af hvaða stríði var þessi orr­usta við Moskvu?

8.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Prag?

9.   Undir hvaða nafni er Cherilyn Sark­isian þekkt­ust?

10.   Hver var Afródíta? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða teikni­mynda­seríu í sjón­varpi er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Á Snæ­fells­nesi.

2.   Banda­lags jafn­að­ar­manna.

3.   Michelle Obama.

4.   Bubbi Morthens.

5.   Papey.

6.   Á Alþingi.

7.   Banda­ríska borg­ara­stríð­inu. Hér var um að ræða Moscow, Tennessee.

8.   Tékk­landi.

9.   Cher.

10.   Grísk ást­ar­gyðja. (Ekki dugar að kalla hana róm­verska.)

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Pilt­ur­inn knái á efri mynd­inni er Tom Swift.

Teikni­mynda­ser­ían á neðri mynd­inni er Futurama.

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár