345. spurningaþraut: Evrópa, Wozniak og hver var drepinn með ísöxi?

345. spurningaþraut: Evrópa, Wozniak og hver var drepinn með ísöxi?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Frétta­myndin hér að ofan var tekin árið 1956. Hvar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Samkvæmt fornum grískum goð­sögum var Evrópa upp­haf­lega nafn á kon­ungs­dóttur einni sem höf­uðguð­inn Seifur ágirntist. Hvar bjó prinsessan Evrópa?

2.   Hvað hét hamar nor­ræna guðs­ins Þórs?

3.   Steve Wozniak heitir karl einn. Hann er frægur fyrir að hafa ásamt öðrum stofnað fyr­ir­tæki eitt. Hvaða fyr­ir­tæki var það?

4.   Í hvaða bæ ger­ast sögur Guðrúnar Helga­dóttur, Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni?

5.   Í ágúst 1940 var maður nokkur drep­inn í Mexíkó með ísöxi. Hver var sá myrti?

6.   Hvað var dýpsta stöðu­vatn á Íslandi — þangað til 2011?

7.   En hvaða vatn var þá til­kynnt að væri enn dýpra?

8.   Íslenskur tón­list­ar­maður gengur erlendis undir nafn­inu JJ Julius Son. Í hvaða vin­sælu hljóm­sveit er hann?

9.   Hver er hin opin­bera mynt Vatík­ans­ins? 

10.   Hver lék aðal­kven­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Börn nátt­úr­unnar frá 1991?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Fönikíu, Líbanon.

2.   Mjölnir.

3.   Apple.

4.   Hafn­ar­firði.

5.   Trotsky.

6.   Öskju­vatn.

7.   Jök­ulsár­lón.

8.   Kaleo.

9.   Evra.

10.   Sigríður Hagalín.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Egifta­landi eða við Súes-skurð. Hvort tveggja telst vera rétt. Um skurð­inn var barist eftir að Egiftar þjóð­nýttu hann.

Á neðri mynd­inni er Indira Gandhi for­sæt­is­ráð­herra Indlands.

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár