Hamingjan er ferðalag

Hvað er ham­ingjan fyrir þér?

Hamingjan er ferðalag

Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari

„Ham­ingjan er eins og hlýtt hreiður í brjóst­inu. Minn­ingar þar sem þú gafst af þér; þar sem þér var gefið. Þegar þú hvíldir í náð hins æðsta.

Leiftur úr æsku; að reka kýrnar út í Salt­höfða, leggj­ast milli þúfna og horfa á skýin, naga strá, spila Bach á fót­s­tigna org­elið. Fá að sjá heim­inn, þvæl­ast um ókunnar slóðir í sól­skini með bak­poka, verða ást­fangin, eign­ast fjöl­skyldu, sjá börnin vaxa. Og allt í einu toga litlir fingur:  Amma, komdu að kubba. Finna aftur ilm af ung­barni. Hjóla á nagla­dekkjum í sund, heitur pottur, kaldur pottur, stjörn­u­rnar fyrir ofan gufustrók­ana. Læða lófa í annan, gam­al­kunnan, hlýjan, traustan.“

Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands

„Hérna áður fyrr stóð ég í þeirri trú að ham­ingjan væri áfanga­staður en það er orðið langt síðan ég gerði mér grein fyrir því að svo er ekki. Það fylgdi þeirri upp­ljómun ákveðið frelsi. Í mínum huga er ham­ingjan augna­blik sem verða til þegar þú gefur þér tíma til að staldra við og njóta. Það getur verið morg­un­kaffið á laug­ar­degi, þegar ég er að elda mat með syni mínum, kvöldsólin á Möðru­dalsör­æfum, vel unnið verk, hug­leiðsla, göngu­ferð á fjöllum eða með­fram sjónum eða góð bók. Ég held að það sé undir hverjum og einum komið að finna þessa litlu ham­ingju­vasa og nýta þá til að búa til innra jafn­vægi þannig að hægt sé að halda áfram að takast á við lífið og til­ver­una.“

Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor á Hugvísindasviði HÍ

„Ham­ingjan ræðst af verð­mæta­mati, við­miðum og reynslu. Hún mót­ast af við­horfum, svo sem trausti og þakk­læti til þess sem hver og einn telur jákvætt fyrir sjálfa(n) sig, umhverfi sitt og/eða sam­fé­lag. Hún mót­ast í öruggum aðstæðum. Öryggi barns­ins gagn­vart þeim sem ala því önn, unga fólks­ins frammi fyrir leið­bein­endum sínum og full­orðna fólks­ins til þeirra aðstæðna sem það býr við – hvort heldur eru félags­legar, fjár­hags­legar eða menn­ing­ar­legar. Orða­til­tækið „hafa skal það sem hendi er næst og hugsa ekki um það sem ekki fæst“ stuðlar að auknu æðru­leysi og virkar sem lóð á vog­ar­skál ham­ingj­unnar.“

Páll Palomares fiðluleikari

„Hamingja er sú vellíð­un­ar­til­finn­ing sem á sér stað þegar maður horfir á eitt­hvað sem manni þykir vera fal­legt, upp­lifir eitt­hvað sem snertir í manni hjartað eða fram­kvæmir eitt­hvað sem er manni ein­hvers virði. En ham­ingja er líka val, að velja að vilja vera ham­ingju­samur. Þeir sem kjósa þann lífs­hátt geta fundið fyrir ham­ingju út frá hinum minnstu hlutum og aðstæðum á meðan aðrir eiga kannski margt en finna sjaldan fyrir ham­ingj­unni. Því ham­ingja er í smá­hlut­unum, í ilm­inum sem maður finnur þegar maður vaknar við hlið­ina á mak­anum sem maður elskar, í fal­legu blómunum sem maður sér þegar fer að vora og í þakk­læt­inu sem maður fær frá mann­eskju sem maður hefur getað hjálpað.“

Pétur Gautur myndlistarmaður

„Ham­ingjan er vellíð­un­ar­til­finn­ing sem ég finn fyrir í öllum kroppnum þegar ég er sem ham­ingju­samastur. Hamingja fyrir mér er að vakna á morgn­ana og vera sáttur við sjálfan mig og alla í kringum mig. Vera vel kvæntur og vera ást­fang­inn upp fyrir haus. Eiga ynd­is­lega fjöl­skyldu. Og ynd­is­lega vini. Það er það sem skiptir mestu máli. Allt annað bliknar í sam­an­burði við það. Og þá skiptir engu máli hvað eða hvernig þið fjöl­skyldan og vinir gerið hlut­ina saman, stóra eða smáa. Bara að vera saman. Það er málið. Það er ham­ingja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár