344. spurningaþraut: Hér er ein fótboltaspurning, sem snýst þó í raun um landafræði

344. spurningaþraut: Hér er ein fótboltaspurning, sem snýst þó í raun um landafræði

Þraut gær­dags­ins, hlekkur á hana.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá konu eina sem var frægur rit­höf­undur, heim­spek­ingur og bar­áttu­sál. Hún lést árið 1986. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra hyggst snúa aftur í stjórn­málin og tekur nú fyrsta sætið á fram­boðs­lista Sam­fylk­ingar í „krag­anum“ svo­nefnda. Hvað heitir þessi fyrr­ver­andi ráð­herra?

2.   Haukur Hilm­ars­son gekk sem sjálf­boða­liði í her­sveitir sem börð­ust í Sýrlandi og kost­aði það hann lífið. Hvaða sveitir gekk hann til liðs við?

3.   Hvað hét hljóm­sveitin sem Gunnar Þórð­ar­son var í þegar hann sló fyrst í gegn?

4.   Fyrr en síðar verður frum­sýnd hér á landi kvik­myndin Alma, sem er þriðja bíó­mynd við­kom­andi leik­stjóra í fullri lengd. Áður hefur leik­stjór­inn gert mynd­irnar Á hjara ver­aldar og Svo á jörðu sem á himni. Hvað heitir þessi leik­stjóri?

5.   Í knatt­spyrnu­sam­bandi Evrópu eru 55 með­limir sem keppa á jafn­rétt­is­grund­velli í Evrópu- og heims­meist­ara­mótum. Allt eru það sjálf­stæð ríki nema England, Skotland, Norður-Írland og Veils sem keppa hvert fyrir sig, og svo er Kosovo enn ekki að fullu við­ur­kennt sem sjálf­stætt ríki. En svo keppa þarna tvö lið til við­bótar, sem eru ekki sjálf­stæð ríki. Hver eru þau? Nefna verður bæði.

6.   Hvað hét konan sem djákn­inn á Myrká hugð­ist kvæn­ast?

7.   Hversu langur er Panama-skurð­ur­inn milli Kyrra­hafs og Karí­ba­hafs? Er hann 8 metrar, 80 metrar, 800 metrar, 8 kíló­metrar, 80 kíló­metrar, 800 kíló­metar eða 8.000 kíló­metrar?

8.   Hvað er belgíski upp­finn­inga­mað­ur­inn Adolphe Sax þekkt­astur fyrir að hafa fundið upp?

9.   Nína Sæmunds­son hét lista­kona ein, sem varð fyrir því að lista­verk eftir hana var sprengt í loft upp. Hvað hét lista­verkið?

10.   Hvað heitir útvarps­stöðin sem rekin er í tengslum við Morg­un­blaðið og önnur skyld fyr­ir­tæki?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá tvo karla, sem feng­ust við sams konar við­fangs­efni, náðu báðir miklum frama á sínu sviði, voru sam­herjar að ýmsu leyti en þó var þeim aldrei neitt sér­lega vel til vina. Hvað hétu þeir? Og já, þið þurfið að hafa bæði nöfnin rétt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir.

2.   Sveitir Kúrda.

3.   Hljómar.

4.   Kristín Jóhann­es­dóttir.

5.   Færeyjar og Gíbraltar.

6.   Guðrún. Hann kall­aði hana hins vegar Garúnu.

7.   80 kíló­metrar.

8.   Saxófón.

9.   Haf­meyjan. „Litla haf­meyjan“ er aftur á móti í Kaup­manna­höfn.

10.   K100.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Simone de Beauvoir.

Á neðri mynd­inni eru þeir Sartre og Camus. Öll þrjú voru í hópi helstu rit­höf­unda Frakka um mið­bik 20. aldar. Sartre og Camus fengu báðir Nóbels­verð­laun í bók­menntum en de Beauvoir ekki. Á óskor­inni mynd­inni hér að neðan má sjá de Beauvoir (stand­andi önnur frá hægri), Picasso (fyrir ofan Camus) og fleiri franska menn­ing­ar­post­ula.

***

Þraut gær­dags­ins, hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár