343. spurningaþraut: Virkisgarður? Íbúar í héraði einu í Belgíu? Hvort er það?

343. spurningaþraut: Virkisgarður? Íbúar í héraði einu í Belgíu? Hvort er það?

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Við hvaða þétt­býl­is­stað er Systrastapi?

2.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Moby Dick?

3.   Hvaða fyr­ir­bæri var Moby Dick?

4.   Banda­ríkja­mað­ur­inn Alan Shepard varð annar mað­ur­inn í sög­unni til að gera ákveð­inn hlut árið 1961. Hvað var það?

5.   Kona nokkur fædd­ist á Sauða­dalsá á Vatns­nesi 1857. Hún nam ljós­móð­ur­fræði í Reykja­vík og Kaup­manna­höfn og bjó eftir það á Hlöðum í Hörg­ár­dal en síðar á Akureyri og í Reykja­vík síð­ustu árin, en hún dó 1933. Hún var skáld­kona. Hvað hét hún? — og hér dugar skírn­ar­nafn hennar.

6.   Í borg einni er fræg gata. Tvær kenn­ingar eru uppi um nafn göt­unnar. Önnur telur nafnið runnið af virk­is­garði sem eitt sinn hafi legið þar sem gatan er nú. Hin kenn­ingin telur götu­nafnið runnið frá því að þar hafi eitt sinn búið fólk frá ákveðnu hér­aði í Belgíu. Hvað heitir þessi gata?

7.   Harold Wilson, Edward Heath og James Callaghan gegndu ákveðnu starfi í hálfan annan ára­tug. Hvaða starf var það?

8.   Hvar er næst­hæsti punktur Íslands á eftir Öræfajökli?

9.   Hvað heitir skipið sem strand­aði á dög­unum í Súez-skurð­inum?

10.   Hvað hét barna­bóka­höf­und­ur­inn Nonni fullu nafni?

***

Auka­spurn­ing sú hin seinni:

Á árunum upp úr 1960 hélt hljóm­sveit að nafni Joey Dee and the Star­liters uppi fjör­inu á skemmti­staðnum The Pepp­erm­int Lounge í New York. Á mynd­inni hér að neðan má sjá gít­ar­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar. Hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kirkju­bæj­ar­klaustur.

2.   Melville.

3.   Hvalur.

4.   Fara út í geim­inn.

5.   Ólöf. Hún var reyndar Sig­urð­ar­dóttir.

6.   Wall Street (í New York). Íbúarnir sem gatan kann að vera kennd við eru Vallónar.

7.   For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

8.   Bárð­ar­bunga.

9.   Ever Given.

10.   Jón Sveins­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er úr kvik­mynd­inni Pscycho.

Gít­ar­leik­ar­inn er Joe Pesci sem hasl­aði sér völl sem kvik­mynda­leik­ari.

***

Og hér er hlekkur á þraut númer 342.

Hérna er hins vegar hlekkur á seinni páska­þraut­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár