342. spurningaþraut: Hvaða litur var á tákni utan á húsi í Frankfurt?

342. spurningaþraut: Hvaða litur var á tákni utan á húsi í Frankfurt?

Hér má finna þraut­ina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá vænan hluta af mál­verk­inu Kossinum eftir aust­ur­rískan mál­ara. Hvað heitir hann?

***

1.   Fyrir eitt­hvað um 2.000 árum var skrifuð á Indlandi bók sem fjallar um hvernig fólk getur notið lífs­ins. Mesta athygli hefur jafnan vakið sá kafli bók­ar­innar sem fjallar um unað kyn­lífs­ins og alls­konar stell­ingar sem fólk getur brugðið sér í við þá iðju. Hvað nefn­ist þessi bók?

2.   Ragnar í Smára kall­að­ist atvinnu­rek­andi einn á Íslandi á 20. öld. Hvað var fyr­ir­tækið hans — Smári — fræg­ast fyrir að fram­leiða?

3.   En Ragnar var ekki síður kunnur fyrir menn­ing­ar­starf­semi. Hvað fékkst hann við á því sviði?

4.   Lög­reglu­konan Katrín rann­sakar óvenju­legt morð­mál á Íslandi í sjón­varps­þátt­unum Brot. Hver leikur hana?

5.   Á ofan­verðri 16. öld bjó maður, sem hét Izaak að for­nafni, í Frank­furt í Þýska­landi. Hann fór þá að kenna sig við húsið sitt þar í borg­inni, enda voru vana­leg ætt­ar­nöfn ekki orðin alsiða meðal Þjóð­verja. Hús voru hins vegar kennd við ýmis mis­lit tákn sem voru máluð utan á þau til að aðgreina þau — þar eð engin hús­númer voru komin til sögu. Tákn húss­ins sem Izaak þessi  fór að kenna sig við var skjöldur, en í hvaða lit?

6.   Hvaða söng­kona sendi frá sér lagið Black Parade árið 2020 og tengdi óhikað við mann­rétt­inda­bar­áttu svarta í Banda­ríkj­unum ?

7.   Frá 2007 til 2013 var Ind­verj­inn Viswanathan Anand heims­meist­ari í til­tek­inni grein, en tap­aði þá titli sínum í hendur Norð­manns. Um hvaða grein er að ræða?

8.   Í hvaða ríki Banda­ríkj­anna er stór­borgin New York?

9.   Hvað nefnd­ist Breta­kóng­ur­inn faðir Elísa­betar 2. núver­andi drottn­ingar? Númer verða að vera rétt.

10.   En hvað nefnd­ist Eng­land­s­kóng­ur­inn sem var faðir Elísa­betar 1. drottn­ingar á 16. öld?

***   

Síðari auka­spurn­ing:

Þessi kona var nokkuð í sviðs­ljós­inu á sam­fé­lags­miðlum fyrir örfáum vikum. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kama sutra.

2.   Smjör­líki.

3.   Bóka­út­gáfu.

4.   Nína Dögg.

5.   Skjöld­ur­inn var rauður. Þetta var upp­haf Rotschild-ætt­ar­innar.

6.   Beyoncé.

7.   Skák.

8.   New York ríki.

9.   Georg 6.

10.   Hinrik 8.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Málarinn hét Klimt.

Konan heitir Edda Falak crossfitstjarna og „áhrifa­valdur“.

***

Og aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær. Voruði búin að spreyta ykkur á henni?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár