340. spurningaþraut: Nú snúast allar spurningar um Kína, það líst okkur á

340. spurningaþraut: Nú snúast allar spurningar um Kína, það líst okkur á

Þrautin frá í gær.

***

Þar sem númer þrautar endar á núlli, þá snú­ast spurn­ing­arnar að venju um eitt og sama þemað.

Að þessu sinni er þemað Kína.

Og fyrri auka­spurn­ing snýst um mynd­ina hér að ofan:

Hvar er þetta mann­virki?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Stjórn Kína hefur að und­an­förnu sætt vax­andi gagn­rýni fyrir á alþjóða­vett­vangi fyrir harð­ræði sem hún sýnir þjóð Úígúra, sem búa í norð­vest­ur­hluta Kína. Að hvaða leyti helst skera Úígúrar sig frá öðrum Kín­verjum?

2.   Kín­verjar eru frægir upp­finn­inga­menn. Hvað af þessum fimm fyr­ir­bærum var EKKI fundið upp í Kína (svo vitað sé), ólíkt hinum fjórum? — átta­viti, hjólið, pappír, prentun, púður. 

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Kína?

4.   Hver af þessum fimm ám rennur EKKI um kín­verska grund? — Amur, Bramaputra, Huang-he (Gulafljót), Jangtse, Mekong.

5.    Hversu margir eru Kín­verjar? Hér má skeika nærri 100 millj­ónum!

6.   Hvað heitir gjald­mið­ill­inn í Kína?

7.    Þegar Ítalinn Marco Polo kom til Kína, fyrstur vest­rænna ferða­langa í langan tíma, í lok 13. aldar, þá var til­tölu­lega nýorð­inn keis­ari í Kína maður af mongólskum ættum. Hvað hét hann?

8.   Hver er fjöl­menn­asta borgin í Kína?

9.   Hvaða vest­ræni tón­list­ar­mað­ur­inn flutti lagið Little China Girl árið 1983 — þótt það hafi raunar komið út fyrst fimm árum fyrr?

10.   Árið 1949 tóku komm­ún­istar völdin í Kína. For­ráða­menn fyrri stjórnar flúðu til Taívan. Hver var æðsti maður þeirrar stjórnar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þeir eru múslimar.

2.   Hjólið.

3.   Bejing.

4.   Mekong. Amur rennur á landa­mærum Kína og Rúss­lands og Bramaputra kemur upp í Tíbet.

5.   Kín­verjar telj­ast nú vera 1.398 millj­ónir. Rétt má vera allt frá 1.300 millj­ónum til 1.500 millj­óna.

6.   Júan.

7.   Kublai Khan.

8.   Shanghaí.

9.   David Bowie. Sjáið og heyrið lagið hér.

10.   Shang Kaí-sjek.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Potala-höllin er í Tíbet.

Maðurinn á mynd­inni er Mao Zedong, síðar for­maður.

***

Þrautin frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár