339. spurningaþraut: Hvar eru evrópsk eldfjöll utan Íslands og Ítalíu?

339. spurningaþraut: Hvar eru evrópsk eldfjöll utan Íslands og Ítalíu?

Hér er hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

***

Auka­spurn­ingar:

Þetta fremur hrör­lega hús við Rue Oudinot í París komst í frétt­irnar síð­ast­liðið sumar. Hvers vegna? Ef þú veist það ertu komin eða kom­inn með svar við fyrri auka­spurn­ingu.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Maður nokkur var þriðji for­seti Banda­ríkj­anna, sat í emb­ætti 1801-1809 en hafði áður átt mik­inn þátt í móta stjórn­skipun og hug­mynda­fræði hins nýja ríkis um og eftir sjálf­stæð­is­bar­átt­una. Hann var til dæmis aðal­höf­undur sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ing­ar­innar 1776. Hvað hét hann?

2.   Hvaða skóli vann á dög­unum spurn­inga­keppn­ina Gettu betur?

3.   Þótt Ísland og Ítalía beri höfuð og herðar yfir önnur Evr­ópu­ríki hvað virk eld­fjöll varðar, þá eru þó fáein slík í öðrum löndum álf­unnar. Árið 1985 varð til dæmis eld­gos í Noregi, þar sem heitir Beerenberg. Hvar í Noregi er það?

4.   Í fjalli í öðru Evr­ópu­landi gaus síð­ast árið 1950 og þá varð sumum ekki um sel því þegar þar gaus einu sinni fyrir eitt­hvað rúm­lega 3.000 árum, þá bein­línis tætti fjallið í sundur heila eyju, svo hún er ekki svipur hjá sjón síðan. Hvað heitir sú eyja?

5.   Í þriðja Evr­ópu­land­inu er fjall sem heitir Teide og gaus árið 1909. Fjallið er á eyju, eins og fleiri eld­fjöll, og ef það skyldi nú fara að gjósa aftur, þá gæti það truflað líf all­margra Íslend­inga. Hvað heitir eyjan þar sem fjallið Teide er að finna?

6.   Kona nokkur fædd­ist 1797 og var fyrstu ára­tug­ina kölluð Belle Baumfree. Þegar hún var komin yfir fer­tugt gaf hún sjálfri sér nafnið Sojourner Truth, því þá gerð­ist hún eld­heit bar­áttu­kona bæði FYRIR kven­rétt­indum en einkum og sér í lagi GEGN ... hverju?

7.   Callisto er þriðja stærsta tungl sól­kerf­is­ins, tölu­vert stærra en okkar tungl. Kringum hvaða plánetu snýst Callisto?

8.   Í bíó­myndum og bókum er gjarnan talað um að fyrrum hafi miklar hjarðir buffaló-uxa reikað um sléttur Norður-Ameríku. En sann­leik­ur­inn er sá að þessir norður-amer­ísku „buffalóar“ eru lítið skyldir raun­veru­legum buffaló-uxum sem búa aðal­lega í Afríku sunnan Sahara og á Indlandi og Suð­austur-Asíu. Hvaða teg­und­ar­heiti er miklu nær að nota um þennan amer­íska naut­grip?

9.   Í hvaða borg er sixtínska kapellan?

10.   Blábokka, skegg­bokka og fiski­bokka eru nöfn á náskyldum teg­undum dýrs, sem er mjög algengt á Íslandi. Fæstir gera nokkurn grein­ar­mun á þessum þremur teg­undum. En hvaða nafn eða nöfn eru algeng­ust yfir þessi dýr?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Þetta er skjá­skot úr stuttri teikni­mynd sem til­nefnd er til Ósk­arsverðauna þetta árið. Hvað skyldi hún heita?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Jeffer­son.

2.   Versl­un­ar­skól­inn.

3.   Á Jan Mayen.

4.   Santor­ini (eða Thiru) á Grikk­landi.

5.   Tenerife, sem til­heyrir Spáni.

6.   Þræla­haldi í Banda­ríkj­unum.

7.   Júpíter.

8.   Bíson. Eða vís­undur upp á íslensku.

9.   Róm.

10.   Fiski­fluga eða maðka­fluga.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Í kjall­ara þess fannst lík sem þar hafði legið óhreyft í 30 ár. Það dugar að nefna lík.

Og teikni­myndin sem spurt er um heitir Já-fólkið. Gísli Darri Hall­dórs­son gerði hana.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár