334. spurningaþraut: Hvað fór fram í Bletchley Park?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurning:

Hér að ofan má sjá málverk eftir franska málarann Hubert Robert, en af HVERJUM er málverkið í raun og veru?

***

Aðal­spurningar:

1.   Hver er forseti Alþingis?

2.   Hvað fór fram í Bletchley Park?

3.   Genghis Khan og hinar mongólsku hersveitir hans fóru sem stormsveipur um Mið-Asíu og Miðausturlönd, en svo lést hann þegar hæst bar. En um hvaða leyti voru Mongólar ferðinni? Hvaða ár dó Genghis Khan? Var það árið 627, árið 827, árið 1027, árið 1227, árið 1427 eða árið 1627?

4.   Hver leik­stýrði árið 1979 kvik­myndinni Alien?

5.   En hver leik­stýrði hér heima á Íslandi kvik­myndunum Nýtt líf og tveimur framhalds­myndum, Dalalíf og Löggulíf?

6.   Framan við hvaða gömlu og virðulegu byggingu var reistur gler­píramídi og lokið við hann 1989?

7.   Hvað heitir drottningin í Noregi?

8.   Henri Toulouse-Lautrec var lista­maður. Hvernig listaverk skóp hann?

9.   Hvað nefnist skaginn sem Akranes stendur á?

10.   Hvar mun næsta heims­meistara­keppni í fótbolta karla fara fram?

*** 

Seinni auka­spurning:

Þessi tónlistar­kona var í miðju kafi með full­skipaðri sveit á Háskóla­tónleikum fyrir fáeinum vikum þegar snarpur jarðsjálfti reið yfir og olli stuttri truflun á tónleikunum. Hvað heitir hún?

 ***

Svör við aðal­spurningum:

1.   Stein­grímur J. Sigfússon.

2.   Dulmáls­ráðningar.

3.   1227.

4.   Ridley Scott.

5.   Þráinn Bertelsson.

6.   Louvre-safnið í París.

7.   Sonja.

8.   Málverk.

9.   Skipa­skagi.

10.   Katar.

***

Svör við auka­spurningum:

Efri myndin er af Nero keisara í Róm þegar mikill bruni varð í borginni árið 64 eftir Krist. Nero er þarna að spila á cithara, eins konar lýru.

Á neðri myndinni er Sóley. Sjá hér.

***

Og þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár