336. spurningaþraut: Hvaða eyjaklasi er ekki í Eyjaálfu?

336. spurningaþraut: Hvaða eyjaklasi er ekki í Eyjaálfu?

Hlekkur á síð­ustu þraut.

— — —

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

— — —

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver af þessum eyjaklösum er EKKI í Eyjaálfu? — Comoros-eyjar, Fiji-eyjar, Marshall-eyjar, Micronesiu-eyjar, Samoa-eyjar, Solomons-eyjar.

2.   Bong Joon Ho heitir maður nokkur, rúm­lega fimm­tugur, fæddur í Suður-Kóreum, þykir bæði skyn­ugur og skemmti­legur og árið 2019 vann hann ákveðið afrek sem engum hafði tek­ist áður. Hvað gæti það verið?

3.   Hvaða ár fengu Íslend­ingar fyrst sér­staka stjórn­ar­skrá?

4.   Árið 1968 varð algjört hrun í veiðum á ákveð­inni fisk­teg­und og hafði það mjög slæm áhrif á efna­hags­á­stand Íslands. Hver var fisk­teg­undin?

5.   Rulla, skro og tala — um hvað voru þessi orð notuð á Íslandi til skamms tíma?

6.   Hvað eiga bíla­teg­und­irnar Pontiac, Mazda Navajo, Jeep Cherokee og Dodge Dakota sam­eig­in­legt? Það lýtur að nöfnum bíl­anna fyrst og fremst.

7.   Árið 934 eða þar um bil varð gríð­ar­legt eld­gos norðan og norð­vestan þess svæðis þar sem Skaft­ár­eldar brut­ust síðar út. Þar mun hafa gosið í um það bil 60 kíló­metra langri gjá, en að vísu ekki sam­fellt alls­staðar í einu. Hvað nefn­ist þessi eld­stöð?

8.   Árið 1960 gaf korn­ung kona út ást­ar­sög­una Ást á rauðu ljósi. Hún gaf svo út tvær skáld­sögur til við­bótar en helg­aði sig síðan ferða­bókum, æviminn­ingum og fræðslu­ritum um fram­andi slóðir. Hvað hét konan?

9.   Eitt af fræg­ustu lögum Bubba Morthens er Blind­sker („Ég sest niður með kaffið, ég set Bowie á fón­inn ...“). Hvaða hljóm­sveit spil­aði með Bubba á þeirri plötu (Lili Marlene) þar sem þetta lag birt­ist fyrst?

10.  Og meðal ann­arra orða. Hvernig er fram­haldið: „... ég set Bowie  á fón­inn, þitt upp­á­halds­lag var ...?“

— — — 

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða lands má sjá hér að neðan?

— — —

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Comoros-eyjar til­heyra Afríku.

2.   Kvik­mynda­leik­stjóri sem varð fyrstur til að vinna Ósk­arsverð­laun fyrir bestu mynd með mynd á annarri tungu en ensku, með mynd­inni Parasite.

3.   1874.

4.   Síld.

5.   Munn­tó­bak. Tóbak dugar alveg.

6.   Heita eftir ætt­bálkum eða ein­stak­lingum af kyni frum­byggja — Indíána sem kall­aðir voru.

7.   Eldgjá.

8.   Jóhanna Krist­jóns­dóttir.

9.   Das Kapital.

Blind­sker í flutn­ingi Das Kapital:Auk Bubba spil­uðu í þessu lagi Mike Pollock gít­ar­leik­ari, Jakob Smári Magn­ús­son bassa­leik­ari og Guð­mundur Gunn­ars­son trommu­leik­ari. Að auki komu Jens Hansson og Arnþór Jónsson við sögu.

10.   Wild is the Wind.

— — —

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Friðrik Ólafsson stór­meist­ari í skák.

Hér til hliðar má sjá mynd­ina óskorna.

Á neðri mynd­inni má sjá útlínur Mexíkó.

— — —

Hlekkur á síð­ustu þraut!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár