335. spurningaþraut: Tölur og jöklar og Fástus

335. spurningaþraut: Tölur og jöklar og Fástus

Þrautin frá í gær.

— — —

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr má sjá á efri mynd­inni?

— — —

Aðal­spurn­ingar:

1.   Tölurnar okkar alkunnu — 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8 og 9 — eru kenndar við hvaða þjóð eða tungu?

2.   Tölurnar I, II, III, IV, V, VI, VII, IX, X og svo fram­vegis eru hins vegar sagðar vera ...?

3.   Hvað nefnd­ist kvarð­inn sem jarð­skjálftar voru mældir á? 

4.   Masters, PGA, US Open, British Open. Hvað er þetta fernt?

5.   Hvað heitir tíma­rit Jökla­rann­sókn­ar­fé­lags Íslands?

6.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Kristni­hald undir jökli?

7.   Í fornum skjölum íslenskum er verð á jörðum yfir­leitt mælt í svoköll­uðum „hund­ruðum“. Í þeim til­fellum var um að ræða svo­nefnt „stórt hund­rað“ sem var öllu stærri en hin venju­lega ein­ing hund­rað. Hversu stórt var stórt hund­rað?

8.   Hún var sögð hafa and­lit sem „hleypir þús­und skipum til sjávar“ — og þá í þeirri merk­ingu að þús­und skip, full af prúðum dátum, komu til aðstoðar þegar henni hafði verið rænt og eig­in­maður hennar leit­aði í örvænt­ingu að henni. Hver var hún?

9.   Sá sem samdi lín­una um and­litið og skipin þús­und var Christopher Marlowe, enskur leik­rita­höf­undur, sam­tíma­maður Shakespe­ares. Hann samdi meðal ann­ars frægt leik­rit um Doktor Faustus, en um hann eru til sögur í mörgum löndum. Hvað gerði Doktor Faustus helst sér til frægðar?

10.   Þjóð­verji einn samdi líka leik­rit um Doktor Faustus, leik­ritið hans heitir ein­fald­lega Faust. Þjóð­verji þessi var upp á sitt besta kringum 1800 og var geysi­lega dáður af öllum Þjóð­verjum — hann orti líka fjölda ljóða, samdi skáld­sög­una Raunir Werthers unga og fleira. Hvað hét þessi róm­aði þýski skáld­mær­ingur?

— — —

Síðari auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan er Emma Corrin. Hún fékk fyrir fáeinum vikum Golden Globe verð­laun fyrir besta leik í sjón­varps­s­eríu. Fyrir hvaða hlut­verk fékk hún verð­launin sín?

— — —

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Arab­ískar.

2.   Róm­verskar.

3.   Richter. Raunar er búið að betrumbæta kvarða Richters svo veru­lega að vís­inda­menn nota nafn hans ekki nútil­dags.

4.   Risa­mótin svoköll­uðu (Majors) í golfi. Ekki dugar að segja bara golf­mót.

5.   Jökull.

6.   Halldór Laxness.

7.   120.

8.   Helena fagra.

9.   Seldi sál sína djöfl­inum.

10.   Goethe.

— — —

Svör við auka­spurn­ingum:

Rándýrið á efri mynd­inni er jagúar.

Ef þið hafið giskað á hlé­barða, þá fæst ekk­ert stig fyrir það, enda er um tvær aðskildar teg­undir að ræða.

Fljótt á litið eru jagú­arar og hlé­barðar vissu­lega líkir en eitt óyggj­andi ráð til að greina á milli þeirra er þetta:

Jagúarar hafa örlitlar svarta punkta inni í stóru „deplunum“ á skinni sínu, en hlé­barðar ekki.

Og hún Emma Corrin á neðri mynd­inni var verð­launuð fyrir að leika Díönu prinsessu eins og ljóst má vera.

— — —

Og aftur þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár