332. spurningaþraut: Hér er spurt um mann sem sparaði ekki stóru orðin gegn syndinni!

332. spurningaþraut: Hér er spurt um mann sem sparaði ekki stóru orðin gegn syndinni!

Þraut frá í gær.

— — —

Á mynd­inni hér að ofan má sjá banda­rísku leikkon­una Renée Zellweger í hlut­verki sínu í bíó­mynd frá 2001. Þar lék hún per­sónu sem hún hefur síðan leikið í tveimur öðrum myndum, 2004 og 2016. Hvað heitir per­sónan?

— — —

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir bæj­ar­fó­get­inn í Kar­dimommubæ?

2.   Hvaða land í ver­öld­inni var fyrrum kallað Síam?

3.   Hvað eru Síams-tví­burar?

4.   Maður nokkur var bisup í Skál­holti frá 1698 til dauða­dags 1720. Hann var frægur mælsku­maður og safn hans af pré­dik­unum var gefið út sem „postillu­safn“. Þar spar­aði hann ekki stóru orðin gegn synd­inni! En biskup var líka breyskur valda­maður, drykk­felldur og skap­stór. Hvað hét hann?

5.   Chloé Zhao vann um dag­inn verð­laun Golden Globe sem besti leik­stjór­inn á síð­asta ári fyrir mynd sína sem heitir ...?

6.   Hvaða nes er milli Breiða­fjarðar og Faxaflóa?

7.   Nýlega var hið mikla rúss­neska skáld­verk, Karamazov-bræð­urnir, gefið út að nýju hér á landi. Hver skrif­aði um þá bræður?

8.   Hver þýddi bók­ina á íslensku, og margar aðrar eftir sama höf­und?

9.   Hvaða stofnun er WHO?

10.   Hvað heitir gít­ar­leik­ari og laga­smiður hljóm­sveit­ar­innar The Who?

— — —

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá þrjá hunda af teg­und sem hefur síð­ustu tvo þrjá ára­tug­ina verið sú vin­sælasta hjá hunda­eig­endum á vest­ur­löndum. Hvað nefn­ist þessi teg­und?

— — —

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Bastian.

2.   Thaíland.

3.   Tvíburar sem fæð­ast að ein­hverju leyti sam­vaxnir.

4.   Jón Vídalín.

5.   Noma­d­land.

6.   Snæ­fells­nes.

7.   Dostoé­v­skí.

8.   Ingi­björg Har­alds­dóttir.

9.   Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (World Health Organization).

10.   Pete Townsend.

— — —

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Zellweger í hlut­verki Bridget Jones.

En hunda­teg­undin á seinni mynd­inni kall­ast á ensku Labrador Retri­ever en hefur oft­ast verið kölluð ein­fald­lega Labrador-hundur á Íslandi.

— — —

Og hér er svo aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár