328. spurningaþraut: Dakar, Dresden og MiG-orrustuþotur

Þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða landi er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi er borgin Dresden?

2.   Hver er fjöl­menn­asta gatan Í Reykja­vík og þar með á öllu Íslandi?

3.   Svo óvenju­lega vill til að vetr­ar­ólymp­íu­leik­arnir á næsta ári, 2022, verða haldnir í borg sem er til­tölu­lega nýbúin að halda sum­ar­ólymp­íu­leik­ana. Borgin verður því sú fyrsta sem heldur bæði sumar- og vetr­ar­leika. Hvaða borg er þetta?

4.   Nú er orðið næsta víst það sem margir töldu sig þó vita, að krón­prins og aðal­valda­maður Sádi-Arabíu stóð per­sónu­lega á bak við morðið á sádískum blaða­manni árið 2018. Hvað hét blaða­mað­ur­inn?

5.   Í hvaða landi var Ferdin­and Marcos for­seti 1965-1986?

6.   Anna Pavlova var ein fræg­asta kona heims­ins á fyrstu ára­tugum tutt­ug­ustu aldar. Hvað fékkst hún við?

7.   Dakar heitir borg í Afríku þar sem voru upp­haf­lega bæki­stöðvar þræla­sala og nýlendu­herra en nú er hún höf­uð­borg í sjálf­stæðu ríki. Hvaða ríki er það?

8.   Í hvaða bæ á Íslandi starfar íþrótta­fé­lagið Stjarnan?

9.   Hvaða þjóð fram­leiðir her­þotur af gerð­inni MiG?

10.   Olga Tokarczuk fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum árið 2018. Hverrar þjóðar er hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er sá ungi maður sem sjá má á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Þýska­landi.

2.   Hraunbæ.

3.   Bejing.

4.   Khasoggi.

5.   Fil­ipps­eyjar.

6.   Hún var ball­ett­dans­ari.

7.   Senegal.

8.   Garðabæ.

9.   Rússar.

10.   Hún er pólsk.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Bosníu Her­segóvínu. Þetta er bær­inn Mostar með hinni frægu brú sem sprengd var í stríð­inu þar á síð­asta ára­tug 20. aldar en end­ur­byggð rétt eftir alda­mótin.

Neðri myndin er af Vladimir Pútin.

***

Þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár