313. spurningaþraut: Þrír ungir bræður frá eyjunni Mön ... þar koma nú eigi margir til mála, ha?

313. spurningaþraut: Þrír ungir bræður frá eyjunni Mön ... þar koma nú eigi margir til mála, ha?

Hér er hlekkur á þraut gær­dags­ins, ekki orð um það meir.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að ofan tekin? Beðið er um nákvæmt svar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Árið 1958 stofn­uðu þrír ungir bræður frá eyj­unni Mön á Írlands­hafi hljóm­sveit. Um svipað leyti fluttu þeir reyndar frá Bret­landseyjum með fjöl­skyldu sinni, og þeir voru síðan oft kenndir við þann stað þar sem fjöl­skyldan sett­ist að, en það var Ástralía. Hvað hét þessi hljóm­sveit?

2.   Hljóm­sveit bræðr­anna var býsna vin­sæl á sjö­unda ára­tugnum en sló svo enn betur í gegn á diskó­tím­anum. Hvað hétu þessir bræður þrír? Og já, þið þurfið að hafa full nöfn þeirra allra þriggja!

3.   Í hvaða landi er borgin Winnipeg?

4.   Á hvaða eyju fluttu Sov­ét­menn kjarn­orku­vopn árið 1962 og ollu með því upp­námi í heim­inum?

5.   Jesúa frá Nasaret lét skír­ast í ánni Jórdan, sem er sögu­frægt fljót í Palest­ínu. Út í hvaða haf fellur áin Jórdan?

6.   Hvaða ár hlaut Ísland full­veldi?

7.   Eftir hvern er leik­ritið Sölu­maður deyr, sem nú er sýnt í Borg­ar­leik­hús­inu?

8.   Af hvaða Íslend­ingi er stytta fyrir framan Stjórn­ar­ráðs­húsið?

9.  Eldur í Kaup­in­hafn — svo nefn­ist þriðji og síð­asti hlut­inn af hvaða skáld­sögu?

10.   Tarja Halonen var for­seti í til­teknu landi frá 2000 til 2012, fyrst kvenna sem gegndi því starfi í land­inu. Hvaða landi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta? (Ekki er spurt um kött­inn.)

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Bee Gees.

2.   Maurice Gibb, Robin Gibb, Barry Gibb. Athugið að Andy Gibb tald­ist ekki til hljóm­sveit­ar­innar.

3.   Kanada.

4.   Kúbu.

5.   Dauða­hafið.

6.   1918.

7.   Arthur Miller.

8.   Hannes Hafstein.

9.   Íslands­klukk­unni.

10.   Finn­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin hér hið efra er tekin á Ráð­hús­torg­inu í Kaup­manna­höfn. Ráð­hús­torgið verður að nefna.

Á neðri mynd­inni er kvik­mynda­stjarnan Mary Pickford.

***

Og hér er hlekkur á þraut­ina síðan í gær, aftur, já aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár