312. spurningaþraut: Hvar rignir mest í heiminum? og fleiri spurningar

312. spurningaþraut: Hvar rignir mest í heiminum? og fleiri spurningar

Þrautin í gær er hér.

***

Auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan er hluti (aðeins hluti!) af umslagi einnar fræg­ustu hljóm­plötu 20. aldar. Hver er platan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir hundur Mikka Músar?

2.   Hver lék aðal­kven­hlut­verkið í víð­frægri banda­rískri gam­an­mynd frá 1959? Myndin hét, meðal ann­arra orða, Some Like It Hot.

3.   Um 1980 hófst hið svo­kall­aða „íslenska kvik­mynda­vor“. Nokkru á undan þeim myndum Ágústs Guð­munds­sonar, Hrafns Gunn­laugs­sonar og fleiri, sem mörk­uðu þetta kvik­mynda­vor, þá frum­sýndi Reynir Oddsson glæpa­mynd sem tald­ist til tíð­inda en var reyndar umdeild. Hún þótti ekki mjög fáguð. Hún var frum­sýnd 1977 en hvað hét þessi mynd?

4.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Afganistan?

5.   Hvað heitir tón­list­ar­há­tíðin sem haldin er fyrstu dag­ana í nóv­em­ber ár hvert — að minnsta kosti þegar far­sóttir leyfa?

6.   Hver er kunn­asti atburð­ur­inn sem gerst hefur við franska bæinn Verdun?

7.   Hvaða Íslend­ingur klippti stór­mynd­irnar Atomic Blonde með Charlize Theron, John Wick með Keanu Reeves og fleiri?

8.   Hvaða dýr er barrakúda?

9.   Frakkar eru eða voru alla vega heil­miklir bíla­fram­leið­endur. Þrjár bíla­teg­undir fram­leiddar í Frakk­landi hafa náð mestum vin­sældum. Hvað heita þær? Hér verður fólk að hafa tvær teg­undir réttar til að fá stig.

10.   Mawsynram og Cherrapunji eru þeir tveir bæir í ver­öld­inni þar sem mest rignir. Úrkomu­magnið er tæpir 12 metrar á ári. Í Reykja­vík er það til sam­an­burðar 0,7 metri eða þar um bil. Bæirnir tveir eru örskammt hvor frá öðrum í sama land­inu. Hvaða land er það?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver situr hér fyrir neðan og les?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Plútó.

2.   Marilyn Monroe.

3.   Morðsaga.

4.   Kabúl.

5.   Iceland Airwaves.

6.   Orrusta í fyrri heims­styrj­öld­inni. Hafa verður stríðið rétt til að fá stig.

7.   Elísabet Ron­alds­dóttir.

8.   Fiskur.

9.   Renault, Peugeot og Citroën.

10.   Indland.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Platan hét og heitir The Dark Side of the Moon með hljóm­sveit­inni Pink Floyd. Hér má sjá albú­mið allt:

En mað­ur­inn sem las í bók á neðri mynd­inni var Einar Bene­dikts­son skáld og athafna­maður.

***

Látið nú eftir yður að reyna yður við þraut­ina frá því í gær, en hér leyn­ist hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár