289. spurningaþraut: Torquay, Dægurvísa, McGillis, tennur, Green — og margt fleira!

289. spurningaþraut: Torquay, Dægurvísa, McGillis, tennur, Green — og margt fleira!

Þrautin 288. leyn­ist á þessum hlekk.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hversu margar eru full­orð­ins­tenn­urnar í mann­eskju? (Þessi spurn­ing hlaut að koma. Hún hefur þá að minnsta kosti verið afgreidd að eilífu!)

2.   Torquay heitir smá­bær á Englandi, vin­sæll sum­ar­leyf­is­staður við Ermar­sund. Bærinn er að öðru leyti ekki mjög þekktur en þar gerð­ist þó ein allra róm­að­asta sjón­varps­s­ería sem Eng­lend­ingar hafa gert og hóf göngu sína 1975. Reyndar sást nú lítið af bænum Torquay í ser­í­unni, því mest­allt besta grínið fór fram inn­an­dyra. Hvað hét þessi sería?

3.   Hver lék aðal karl­hlut­verkið í þess­ari seríu?

4.   Hver er eini tón­list­ar­mað­ur­inn sem fengið hefur Nóbels­verð­laun í bók­menntum?

5.   Hvað gerði Alex­ander Fleming sér til frægðar?

6.   Skáld­sög­urnar Dæg­ur­vísa, Snaran og Lifandi vatnið voru allar lagðar fram sem fram­lag Íslands til bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs 1965, 1968 og 1974. Hver skrif­aði þær?

7.   Kelly McGillis lék árið 1986 aðal kven­rull­una í afar vin­sælli amer­ískri bíó­mynd. Nú bíður hins vegar frum­sýn­ingar fram­hald þessar myndar, og svo bregður við að þótt aðal karl­inn úr fyrri mynd­inni end­ur­taki hlut­verk sitt í þeirri nýju 35 árum síðar, þá þykir Kelly McGillis orðin of gömul til að fá hlut­verk í fram­halds­mynd­inni! Hvað hét þessi fræga fyrri mynd?

8.   Hvar er hið fræga Steina­safn Petru?

9.   Hver lék Rachel Green?

10.   Hvaða eld­stöð er undir Mýr­dalsjökli?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er á mynd­inni hér að neðan? Svarið þarf ekki að vera hár­ná­kvæmt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   32. Ekki skal taka neitt til­lit til fjöl­skyldu­þjóð­sagna um að afi (eða amma) hafi haft 36 tennur eða eitt­hvað. Rétt svar er 32 og ekk­ert annað.

2.   Hótel Tinda­stóll eða Fawlty Towers.

3.   John Cleese.

4.   Bob Dylan.

5.   Fann pens­illín.

6.   Jakobína Sig­urð­ar­dóttir.

7.   Top Gun.

8.   Stöðv­ar­firði.

9.   Jennifer Aniston.

10.   Katla.

***

Svör  við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Theodore Roosevelt Banda­ríkja­for­seti.

Á neðri mynd­inni er lemúr af teg­und sem heitir á ensku ring­tailed lemur og þýtt hefur verið sem hringrófulemúr. Helsta sér­fræð­ingi íslenskra fjöl­miðla í lemúr­a­fræðum (Veru Ill­uga­dóttur) þykir hins vegar heitið kattal­emúr betra, enda heitir lemúr­inn „lemur catta“ á lat­ínu. Ein­dregið skal tekið undir það hér. Hins vegar er alveg nóg í þessu til­felli að segja bara lemúr.

***

Hér er hlekkur frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár