288. spurningaþraut: Hver er móðir hinnar þriggja ára Alexis Olympiu Ohanian?

288. spurningaþraut: Hver er móðir hinnar þriggja ára Alexis Olympiu Ohanian?

Hlekkur á þraut númer 287.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Þær eru víða blokk­irnar. En flestir munu þó átta sig á að blokk eins og sú sem sést á mynd­inni hér að ofan getur aðeins verið í einni borg. Hver er borgin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver eða hverjir sungu fyrir Íslands hönd í Eurovision 1987?

2.   Mariana-gjáin, hvað er merki­legt við hana?

3.   Á árunum 2003-2004 stýrði Óskar Jónasson gam­an­þáttum á Stöð 2 þar sem Auddi og Sveppi, Guðlaug Elísabet og Edda Björg, Pétur Jóhann, Sigurjón Kjart­ans­son, Jón Gnarr og fleiri fóru með gam­an­mál. Þætt­irnir hétu eftir ákveðnu dýri og ákveð­inni mat­ar­teg­und, sem sé ....?

4.   „Skaltu það muna, ves­all maður, meðan þú lifir að kona hefur barið þig.“ Í hvaða bók­mennta­verki falla þessi ódauð­legu orð?

5.   Hvað þýðir „deja vu“?

6.   Hver er hæsta bygg­ing á Íslandi? Þá telj­ast ekki með möstur og reyk­háfar.

7.   Hver sér um þátt­inn „Á reki“ í Rík­is­út­varp­inu?

8.   Hvaða starfi gegndu feðgarnir Ísleifur Giss­ur­ar­son og Gissur Ísleifs­son fyrstir allra á Íslandi?

9.   Sarah Jessica Parker hefur reglu­lega síð­ustu ára­tugi brugðið sér í hlut­verk Carrie nokk­urrar Bradshaw. Við hvað starfar hin ímynd­aða per­sóna Carrie Bradshaw?

10.   Alexis Olympia Ohanian er þriggja ára stúlka. Faðir hennar er einn af stofn­endum vef­síð­unnar Reddit, en þó hann hafi einu sinni verið kall­aður „borg­ar­stjóri inter­nets­ins“, þá er mamma Alexis tölu­vert meira áber­andi í bili. Stúlkan ferð­ast tölu­vert um heim­inn með mömmu sinni — jafn­vel á þessum covid-tímum, því móðir stúlkunnar og starfs­fé­lagar hennar ferð­ast meira þessa mán­uði en flestir. Sumir halda því fram að fæð­ing Alexis litlu hafi truflað móður hennar frá því að verða ótví­rætt allra, allra best kvenna í sög­unni í sinni grein, en mamman er þó enn að reyna — enda ann­áluð fyrir þraut­seigju og hörku — og er nú stödd í Ástralíu þeirra erinda. Hver er móðir Alexis Olympiu? 

***

Síðari auka­spurn­ing.

Myndin hér að neðan er úr vin­sælli sjón­varps­s­eríu sem hefur verið sýnd á Íslandi og víðar öðru hvoru síð­ustu árin. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Halla Margrét.

2.   Dýpsta gjá í sjónum, mesta haf­dýpi á jörð­inni.

3.   Svína­súpan.

4.   Gísla­sögu Súrs­sonar.

5.   End­ur­tekn­ing­ar­upp­lifun, finn­ast eitt­hvað hafa gerst áður.

6.    Turninn á Smára­torgi í Kópavogi. Hann er 77,6 metra hár, þremur metrum hærri en Hall­gríms­kirkja.

7.   KK.

8.   Þeir voru bisk­upar.

9.   Dálka­höf­undur, blaða­maður.

Serena, Alexis yngri, Alexis eldri

10.   Serena Williams tennis­leik­ari.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Blokkin er í Hong Kong.

Sjón­varps­s­er­ían heitir Babylon Berlin, en þið fáið líka rétt fyrir Berlin Babylon!

***

Hlekkur á þraut­ina síð­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár