281. spurningaþraut: Maraþon-hlaup, vinsæll glæpasagnahöfundur og margt annað

281. spurningaþraut: Maraþon-hlaup, vinsæll glæpasagnahöfundur og margt annað

Hlekkur á þrautina frá því í gær.

***

Fyrri aukaspurning:

Hvaða höfuðborg má sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðalspurningar:

1.   Hvað hét listinn sem sigraði í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík árið 1994?

2.   Kristín Völundardóttir stýrir tiltekinni stofnun, þótt hún hafi oft orðið fyrir harðri gagnrýni. Hvaða stofnun er það?

3.   Henry Thomas heitir bandarískur leikari sem lék aðalhlutverkið — eða altént eitt af aðalhlutverkunum — í mjög vinsælli kvikmynd árið 1982. Hann var þá alveg óþekktur og margir héldu að nú yrði leið hans á toppinn í filmubransanum greið. Svo fór reyndar ekki. Hann hefur átt ágætan feril en ekki stórkostlegan, og þessi gamla mynd — sem snýst um að persóna Thomas eignast nýjan vin — er og verður hans eftirminnilegasta. Hver er myndin?

4.   Hvað var leikstjóri þeirrar myndar?

5.   Hvaða fljót fellur um París?

6.   Leikritahöfundurinn Lars Norén lést nýlega úr Covid-19, rúmlega sjötugur, en hann þótti einn helsti leikritahöfundur Evrópu síðustu áratuga. Frá hvaða landi var Norén?

7.   Hversu langt er maraþon-hlaup? Hér eru skekkjumörk upp á rétt um það bil einn kílómetra til eða frá.

8.   „Þeim var ég verst er ég unni mest.“ Hver sagði þetta aftur?

9.   Joe Biden núverandi Bandaríkjaforseti fæddist í ríkinu Pennsylvaniu, en sat áratugum saman í öldungadeild bandaríska þingsins fyrir annað ríki — reyndar í næsta nágrenni við Pennsylvaníu. Hvaða ríki Bandaríkjanna er það?

10.   Robert Galbraith heitir all vinsæll glæpasagnahöfundur á Bretlandi, sem hefur gefið út hálfan tug skáldsagna þar sem einkaspæjarinn Cormoran Strike leysir erfið sakamál. Fljótlega eftir að fyrsta bókin kom út 2013 varð á allra vitorði að á bak við nafnið Robert Galbraith leyndist annar höfundur, sem óhætt er að segja að hafi verið sá vinsælasti í heimi síðusta aldarfjórðunginn. Hver er Galbraith í raun og veru?

***

Síðari aukaspurning:

Hver er konan sem sést hér að neðan með pabba sínum?

***

Svör við aðalspurningum:

1.   Reykjavíkurlistinn.

2.   Útlendingastofnun.

3.   E.T.

4.   Spielberg.

5.   Signa.

6.   Svíþjóð.

7.   Maraþon-hlaup er nákvæmlega 42,195 kílómetrar. Rétt telst því vera allt frá 41,2 til 43,2.

8.   Guðrún Ósvífursdóttir.

9.   Delaware.

10.   J.K.Rowling.

*** 

Svör við aukaspurningum:

Borgin á efri myndinni er Stokkhólmur.

Á neðri myndinni er Nancy Sinatra ásamt föður sínum Frank.

***

Og hlekkur á þrautina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
1
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
2
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár