Skemmdir unnar á bifreið borgarstjóra

Lög­reglan skoðar hvort skot­vopn hafi verið notuð eins og í skemmd­ar­verkum á skrif­stofu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Skemmdir unnar á bifreið borgarstjóra
Dagur B. Egg­erts­son Lög­reglan lítur málið alvar­legum augum að því fram kemur í til­kynn­ingu. Mynd: Samfylkingin

Lögregan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar skemmdir sem unnar voru á bif­reið Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra. Rann­sóknin snýr meðal ann­ars að því hvort skot­vopn hafi verið notað við verkn­að­inn og hvort málið teng­ist skemmdum á hús­næði Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­ustu viku.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá emb­ætt­inu. Málið er sagt litið alvar­legum augum, en skot­vopn voru notuð til að vinna skemmd­ar­verk á hús­næði Sam­fylk­ing­ar­innar í Sóltúni í Reykja­vík. Sömu­leiðis hafa skemmdir verið unnar á hús­næði fleiri stjórn­mála­flokka. „Bif­reiðin, sem varð fyrir skemmdum, er í eigu borg­ar­stjóra og fjöl­skyldu hans,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár