Missti bróður sinn í sundi og vill úrbætur: „Hvað þarf mörg mannslíf til?“

Sigrún Sól Ólafs­dóttir segir mik­il­vægt að þrýsta á um úrbætur á örygg­is­málum í sund­laugum. Þegar þau eru í lagi eigi banaslys ekki að verða. Þegar bróðir hennar drukkn­aði var því einnig haldið fram að um veik­indi hefði verið að ræða, en krufn­ing leiddi annað í ljós. Ekki nóg sé aðhafst til að fyr­ir­byggja slík slys.

Missti bróður sinn í sundi og vill úrbætur: „Hvað þarf mörg mannslíf til?“
Sundlaug Selfoss Mynd: Árborg

„Hvað þarf mörg manns­líf til?“ að knýja á um breyt­ingar á verk­ferlum og örygg­is­málum í sund­laugum, spyr Sigrún Sól Ólafs­dóttir, sem missti bróður sinn árið 2006 þegar hann drukkn­aði í sundi. 

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag fannst maður á botni sund­laugar í Sundhöll Reykja­víkur og var úrskurð­aður lát­inn þegar end­ur­lífg­un­ar­til­raunir báru ekki árangur. Maðurinn hét Guðni Pétur Guðnason og var 31 árs gam­all.

Fullyrt að um veikindi væru að ræða

Mbl.is greindi fyrst frá mál­inu á sunnu­dag, en þar var haft eftir aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni að um veik­indi hefði verið að ræða. Síðar sama dag steig faðir Guðna, Guðni Heiðar Guðnason, fram og gerði athuga­semdir við þann mál­flutn­ing, þar sem sonur hans var stál­hraustur maður, sem kenndi sér einskis meins og var í sundi með geð­fötl­uðum skjól­stæð­ingi sínum, líkt og hann gerði dag­lega.

„Ég skil ekki þessi vinnu­brögð að full­yrða að um veik­indi hafi verið að ræða,“ sagði Guðni, sem sjálfur fékk aðrar skýr­ingar en veittar voru í fjöl­miðlum.

Guðni greindi jafn­framt frá því að sonur hans hafi legið á botni laug­ar­innar í sex mín­útur áður en brugð­ist var við. Það er langur tími. Því sé honum spurn hvar sund­laug­ar­verð­irnir hafi verið þegar slysið átti sér stað.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu Reykja­vík­ur­borgar voru þeir í salnum, en þá spyr Guðni með hverju þeir hafi verið að fylgj­ast. „Hvaða verk­ferl­ar voru brotn­ir þar? Hvers vegna lá son­ur minn á botn­in­um í sex mín­út­ur?“ spurði hann í sam­tali við Mbl.is.

Öryggiskerfi hefði getað bjargað lífi sonarins

Í nýjum sund­laugum hafi verið sett upp kerfi sem skynjar hvort eitt­hvað liggi hreyf­ing­ar­laust á botni laug­ar­innar. Að fimmtán sek­úndum liðnum eigi kerfið að gera sund­laug­ar­vörðum við­vart. „Nú veit ég að Sundhöll Reykja­víkur er nýlega upp­gerð. Ég spyr af hverju var þetta kerfi ekki sett upp sam­hliða þeim fram­kvæmdum? Það er alveg ljóst í mínum huga að ef þetta kerfi hefði verið virkt eða virkað þá hefði ef til vill mátt bjarga lífi hans,“ sagði Guðni síðar í við­tali við Vísi.

Hann tók jafn­framt fram að hann sé ekki í leit að söku­dólgum, heldur svörum við því hvað kom fyrir son sinn. Rannsókn lög­reglu er á frum­stigi og beðið er eftir nið­ur­stöðu krufn­ingar. 

Áður ranglega fullyrt um veikindi

Reynsla hann minnir óneit­an­lega á atburð­ina sem áttu sér stað árið 2006, þegar Sigrún Sól missti bróður sinn. Í færslu sem hún skrif­aði á Facebook í dag segir hún að umræðan sem á sér stað núna, eftir banaslys í Sundhöll Reykja­víkur, hafi hrært upp sárum og erf­iðum minn­ingum. Þar bendir hún á að aftur og aftur drukkni fólk í sund­laugum. Dæmi séu jafn­vel um að það hafi gerst ítrekað í sömu laug­unum. Slys geti gerst en það hljóti að kalla á að örygg­is­mál og verk­ferlar séu lag­aðir.

Í til­felli bróður hennar hafi einnig verið full­yrt að hann hlyti að hafa verið veikur og fjöl­skyldan hugs­aði slíkt hið sama, þar sem hann var vanur sund­maður. For­eldrar hennar heitnir lögðu sig því fram um að láta þar við sitja og biðl­uðu til fjöl­miðla að fjalla ekki um málið, vegna þess að áfallið fyrir átján ára gamlan sund­laug­ar­starfs­mann sem hafði það hlut­verk að gæta öryggis á þessu svæði var svo mikið.

Sigrún bendir einnig á hversu skakkt það væri að 18 ára mann­eskja sé ein látin bera ábyrgð á öllu úti­svæði laug­ar­innar. Til að vernda þennan starfs­mann sögðu for­eldrar Sigrúnar fjöl­skyldu hans að um veik­indi hafi verið að ræða. „Og fólk trúði því. Vegna þess að bróðir minn var ein­hverfur og not­aði auk þess sondu. En hann var lík­am­lega hraustur og hann fór í sund á hverjum ein­asta degi og synti alltaf á sama tíma, hvernig sem viðr­aði, á kvöldin, rétt fyrir lokun laug­ar­innar. Allir þekktu hann þarna - og föstu rútín­una hans.“

Of mikil ábyrgð sett á einn starfsmann

Þetta kvöld var slag­veður og bróðir hennar lá í margar mín­útur á botni laug­ar­innar áður en annar sund­laug­ar­gestur fann hann. „Krufning leiddi í ljós að ekk­ert amaði að honum. Þetta var drukknun.“

Við­brögðin voru heldur fátæk­leg. Á sínum tíma barst fjöl­skyld­unni blóm­vöndur frá stjórn laug­ar­innar og sam­úð­ar­kveðjur. Engar afsak­anir, útskýr­ingar og engum verk­ferlum breytt. Sigrún reyndi sjálf að spyrj­ast fyrir en fjöl­skyldan steig öll var­lega til jarðar vegna þess að hún hafði áhyggjur af ung­lingnum sem hafði tekið á sig sök­ina og var í áfalli. Sigrún segir þó að þetta hafi svo sann­ar­lega ekki verið hennar sök. Það sé óskilj­an­legt að ein mann­eskja sé látin bera svona mikla ábyrgð, hvað þá þegar hún er svo ung og hefur fengið litla þjálfun.

„Enginn kom“

„Aftur hafa orðið dauða­slys þarna. Mörgum árum eftir dauða bróður míns hef ég sjálf tromp­ast þarna úr reiði sem sund­laug­ar­gestur, þegar ég varð vitni að, og kom til hjálpar barni sem átti í erf­ið­leikum og gleypti mikið vatn.“

Enginn starfs­maður hafi verið sýni­legur, engin við­brögð feng­ist en hópur barna hafi verið í upp­námi og talið að vinur sinn væri að drukkna. „Enginn kom,“ skrifar hún og lýsir því hvernig hún rudd­ist upp í eft­ir­lits­turn­inn þar sem einn starfs­maður sat, ung­lings­stúlka sem var að skoða sím­ann sinn. Sigrún lét ekki þar við sitja heldur reyndi hún að ræða við starfs­menn í afgreiðsl­unni en fékk lítil við­brögð, segir að þeir hafi yppt öxlum og horft skringi­lega á hana, þar sem við­brögð hennar voru kannski sterk­ari en til­efni var til, vegna for­sög­unnar, og hún brást í grát. „Það hæfði eflaust ekki til­efni eða stund og stað,“ skrifar hún og bætir því að ekk­ert hafi verið skoðað í kjöl­farið, ekk­ert gert. „Stuttu síðar varð enn eitt dauða­slysið í þess­ari sömu laug.“

Að lokum seg­ist hún ekki vera vön að deila svo per­sónu­legum upp­lýs­ingum á opin­berum vett­vangi en það verði að þrýsta úrbætur í örygg­is­málum í sund­laugum. Yfirklór og vörn dugi ekki til, það þýði ekk­ert að segja að ýmis­legt hafi verið lagað. „Drukknun í sund­laugum á ekki að eiga sér stað. Ef örygg­is­gæsla og við­bragðs­flýtir væri í lagi hefðum við ekki tapað öllum þessum lífum.“

Bróðir minn drukknaði í Sundlaug Selfoss

Færsluna má lesa hér að neðan í heild sinni:

„Fréttir af þessu slysi í Sundhöll Reykja­víkur þar sem ungur maður er hrifs­aður á braut hræra upp sárum og erf­iðum minn­ingum. Ég sam­hrygg­ist fjöl­skyldu hans og vinum inni­lega. 

Ég hnaut einmitt um fyrsta frétta­flutn­ing af mál­inu, þar sem lög­reglu­maður full­yrti að um veik­indi hefði verið að ræða.

Aftur og aftur í gegnum árin koma upp slys, drukknun, í sund­laugum. Stundum í sömu laugum. Slys geta gerst. En, það er ger­sam­lega sturlað að ekki sé farið marg­falt betur yfir örygg­is­mál og verk­ferlar lag­aðir. Hvað þarf mörg manns­líf til?

Bróðir minn drukkn­aði í Sundlaug Selfoss árið 2006. 42ja ára gam­all.

Þá voru fyrstu við­brögð þau sömu og hér: „Hann hlýtur að hafa verið veikur.“

Þá hugs­uðum við það líka, fjöl­skyldan hans: „hann hlýtur að hafa veikst.“ Það bara gekk ekki upp að hann gæti ein­fald­lega drukknað.

Í því til­felli lögðu for­eldrar mínir heitnir sig meira að segja fram um að láta við það sitja útá við, vegna þess að áfall starfs­manns­ins, sem átti að gæta svæð­is­ins þar sem slysið varð, var svo stórt og mikið. Mann­eskjan fékk tauga­á­fall. 18 ára og látin bera ein alla ábyrgð á öllu úti­svæði laug­ar­innar. Við meira að segja biðl­uðum til þess að fjöl­miðlar myndu ekki slá þessu upp því for­eldrar mínir ótt­uð­ust um heilsu starfs­manns­ins.

Til að vernda hana. Þau meira að segja sögðu hennar fjöl­skyldu bein­línis að um veik­indi hefði verið að ræða.

Og fólk trúði því. Vegna þess að bróðir minn var ein­hverfur og not­aði auk þess sondu. En hann var lík­am­lega hraustur og hann fór í sund á hverjum ein­asta degi og synti alltaf á sama tíma, hvernig sem viðr­aði á kvöldin, rétt fyrir lokun laug­ar­innar. Allir þekktu hann þarna - og föstu rútín­una hans.

Þetta kvöld í lok októ­ber var slag­veður og hann hafði legið þarna margar mín­útur og það var annar sund­laug­ar­gestur sem fann hann.

Krufning leiddi í ljós að ekk­ert amaði að honum. Þetta var drukknun.

Á sínum tíma kom einn blóm­vöndur frá stjórn laug­ar­innar og sam­úð­ar­kveðjur. Ekkert um afsökun, útskýr­ingu og engum verk­ferlum breytt. Ég reyndi að spyrja, en við stigum öll svo var­lega til jarðar því við höfðum áhyggjur af ung­lingnum sem tók á sig sök og var í miklu áfalli. En þetta var svo sann­ar­lega ekki hennar sök. 

Það er óskilj­an­legt að ein mann­eskja, þar að auki ung og lítið þjálfuð, sé sett í svona risa­á­byrgð. Aftur hafa orðið dauða­slys þarna. Mörgum árum eftir dauða bróður míns hef ég sjálf tromp­ast þarna úr reiði sem sund­laug­ar­gestur, þegar ég varð vitni að og kom til hjálpar barni sem átti í erf­ið­leikum og gleypti mikið vatn. Enginn starfs­maður sýni­legur, eng­inn við­brögð og hópur barna í panikki og héldu að vinur sinn væri að drukkna. Enginn kom. 

Ég rudd­ist upp í turn­inn þarna úti og þar sat ein ung­lings­stelpa og var að skoða sím­ann sinn. Eftir á reyndi ég að tala um þetta við starfs­menn í afgreiðsl­unni og það var bara yppt öxlum. Og horft á mig skringi­lega. Enda kannski ekki skrýtið því ég brast í grát og það hæfði eflaust ekki til­efni eða stund og stað. Ekkert skoðað - ekk­ert gert. Stuttu síðar varð enn eitt dauða­slysið í þess­ari sömu laug.

PS. Ég er ekki vön að deila svo per­sónu­legum upp­lýs­ingum á opin­berum vett­vangi. En ég vona meiri þrýst­ingur verði settur á að raun­veru­lega séu gerðar úrbætur í örygg­is­málum í sund­laugum. Ekki bara yfir­klór og hrökkva í vörn og segja: „Jú, víst hefur ýmis­legt verið lagað.“

Drukknun í sund­laugum á ekki að eiga sér stað. Ef örygg­is­gæsla og við­bragðs­flýtir væri í lagi hefðum við ekki tapað öllum þessum lífum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár