Tilkynnt um fimm alvarleg atvik eftir bólusetningu

Ekki eru aug­ljós tengsl milli auka­verk­ana og bólu­setn­ingar. Tilkynnt hefur verið um fjögur dauðs­föll aldr­aðra ein­stak­linga sem glímt höfðu við und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og lang­vinn veik­indi fyrir bólu­setn­ingu.

Tilkynnt um fimm alvarleg atvik eftir bólusetningu
Tilkynnt um 31 til­vik auka­verk­ana Auka­verkun segir ekkki til um orsaka­sam­hengi heldur ein­ungis að tengsl séu milli bólu­setn­ingar og til­tek­ins atviks í tíma. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lyfja­stofnun hefur borist 31 til­kynn­ing um auka­verk­anir eftir bólu­setn­ingu við Covid-19. Fimm til­kynn­ingar eru um alvar­leg atvik, þar af fjögur dauðs­föll. Í öllum fimm til­vik­unum er um að ræða aldr­aða ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og lang­vinn veik­indi. Ekki liggja fyrir aug­ljós tengsl milli auka­verkan­anna og bólu­setn­ing­ar­innar vegna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma þeirra sem um ræðir. Þetta kemur fram í svörum Lyfja­stofn­unar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Í 26 til­vikum var ekki um alvar­legar auka­verk­anir að ræða heldur hefð­bundnar auka­verk­anir af bólu­setn­ingum, svo sem eymsl á stungu­stað, höf­uð­verki, svima, þreytu, ógleði eða slapp­leika. Þær auka­verk­anir eru í sam­ræmi við upp­lýs­ingar á fylgiseðli bólu­efn­is­ins Comirnaty frá Pfizer og BioNTech. Tíðni auka­verk­ana er svipuð og upp­lýs­ingar frá lyfja­fram­leið­end­unum benda til. Ekki eru til staðar sam­an­burð­ar­tölur um tíðni auka­verk­ana í nágranna­lönd­unum að svo komnu máli. Flestar til­kynn­ingar varða fram­línu­starfs­menn sem fengið hafa bólu­setn­ingu.

„Lyfja­stofnun telur mik­il­vægt að árétta að til­kynnt auka­verkun segir ekk­ert til um orsaka­sam­hengi“

Alvarleg auka­verkun er auka­verkun eða óæski­leg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífs­hættu­legs ástands, sjúkra­hús­vistar eða leng­ingar á sjúkra­hús­vist, veldur fötlun eða fæð­ing­argalla hjá mönnum.

Ekki hafa borist neinar til­kynn­ingar um auka­verk­anir að svo komnu máli sem gefa til­efni til að end­ur­skoða hverjir fá bólu­setn­ingu sam­kvæmt svörum Lyfja­stofn­unar. „Lyfja­stofnun telur mik­il­vægt að árétta að til­kynnt auka­verkun segir ekk­ert til um orsaka­sam­hengi, bara að tengsl séu milli bólu­setn­ingar og til­tek­ins atviks í tíma. Hafa verður í huga að í þess­ari umferð bólu­setn­inga var verið að bólu­setja okkar veik­ustu og elstu ein­stak­linga. Gagnsemi nákvæmrar skrán­ingar er fyrst og fremst til að geta fundið merki um mynstur mögu­legra auka­verk­ana sem kann að tengj­ast bólu­setn­ing­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár