Vonar að fólk fari ekki að flýja Seyðisfjörð

Hólm­fríður Guðjóns­dóttir, vara­formaður Slysavarnar­deildarinnar Ránar á Seyðis­firði, segir heimamenn rólega en kvíðna vegna hamfar­anna fyrir austan. Aurskriða féll á hús í nótt og reif það af grunni sínum. Rignt hefur næsta látlaust í tíu daga eystra. Jólin eru komin í bið.

Breiðablik gjörónýtt
Breiða­blik gjör­ó­nýtt Eins og sjá má er húsið gjör­ó­nýtt eftir að skriðan hreif það með sér. Mynd: Aðsent

Tvær aurskriður féllu í nótt í ausandi vatns­veðri á Seyðis­firði. Önnur þeirra lenti á húsinu Breiða­bliki og hreif það af grunni sínum 50 metra vegalengd. Húsið er gjörónýtt eftir. Hólm­fríður Guðjóns­dóttir, vara­formaður Slysavarnar­deildarinnar Ránar á Seyðis­firði, segir heimmenn bregðast við af æðruleysi en séu kvíðnir. Hún hefur eilitlar áhyggjur af því að fólk muni hugsa sig tvisvar um varðandi áfram­haldandi búsetu í bænum, fólk sem á þar kannski ekki rætur. Jólahald mun þá eitthvað raskast. „Það liggur við að maður sé búin að setja jólin á hold.“

Hólm­fríður var komin út í björgunarsveitarhús þegar blaða­maður náði í hana í síma. „Ég held að fólk sé rólegt yfir þessu öllu saman en kvíðið. Það er alveg ausandi rigning hérna ennþá og ekki farið að birta almennilega. Það verður ekki fyrr en í birtingu sem við sjáum almennilega hvernig ástandið er. Það er bara spurning hvernig þetta endar.“

Húsið Breiða­blik við Austurveg sem aurskriðan hreif með sér um klukkan þrjú í nótt og bar um 50 metra leið er gjörónýtt. Hólm­fríður segir að eigandi hússins, sem er erlend kona, hafi ekki verið á Seyðis­firði og enginn hafi verið í húsinu. „Það er bara gjörónýtt, allt brotið og bramlað.“

Hólm­fríður segir ljóst að eitthvað tjón hafi orðið á öðrum húsum í bænum, fyrir utan það tjón sem hafi orðið á gróðri og öðrum eignum. „Menn hafa bara ekkert komist í að skoða þetta á meðan ástandið er eins og það er. Það flæðir inni í kjallara og inn í mörg hús í þessu úrhelli hérna.“

Rignt sleitulaust í tíu daga

Úrkoman byrjaði 10. desember síðastliðinn og hefur rignt næsta sleitu­laust síðan þá að sögn Hólm­fríðar. „Það hefur ekki rignt svona lengi hérna í mínu minni, við höfum kannski fengið rigningu í tvo eða þrjá daga en ekki svona.

„Ég held að enginn hafi getað búist við svona mikilli rigningu“

Skriðu­hætta er þekkt í Seyðis­firði en Hólm­fríður segir þó að enginn sé undir­búinn undir hamfarir sem þessar. „Ekki eins og þetta, það hafa komið spýjur niður hlíðar hér áður en ekkert í líkingu við þetta. Það er bara hálf hlíðin að koma niður. Ég held að enginn hafi getað búist við svona mikilli rigningu.“

Að sögn Hólm­fríðar hafa um 120 manns þurft að yfirgefa hús sín vegna skriðu­hættunnar. Allt það fólk hefur fengið gistingu á Seyðis­firði hafi það æskt þess. „Fólk hefur verið boðið og búið að lána húsin sín standi þau tóm, fólk hefur gist á Hótel Snæfelli og Rauði krossinn opnaði fjölda­hjálparstöð í íþrótta­húsinu þar sem fólk getur gist og fengið að borða. Það hjálpast allir að og halda um hvern annan.“

Sýnir mikilvægi gangna undir Fjarðarheiði

Fjarðar­heiði er eina leiðin á landi sem liggur á Seyðis­fjörð og er oft á tíðum farar­tálmi. Seyðfirðingar hafa enda bent á það árum saman að svo sé og kallað eftir jarð­göngum. Hólm­fríður segir að leiðinda­færi sé á heiðinn núna, slydda og leiðinda skyggni. Hún sé þó ekki farar­tálmi hvað varðar aðföng eða mannskap til aðstoðar að svo stöddu. „Við þurfum engu að síður göng hingað, það er ekki hægt að búa við þetta,“ segir Hólm­fríður.

Björgunar­sveitinn Jökull af Héraði hefur sent mannskap niður á Seyðis­fjörð til aðstoðar við heimamenn í Björgunar­sveitinni Ísólfi. Kallað verður á fleiri ef tilefni er til. Verkefni sveitanna verður að reyna að hreinsa til og bjarga þeim verðmætum sem hægt er að bjarga, verði mögulegt að fara um svæðið vegna skriðu­hættu.

„Það liggur við að maður sé búin að setja jólin á hold“

Þrátt fyrir ástandið segir Hólm­fríður að heimamenn taki stöðunni með jafnaðar­geði. „Getur maður nokkuð gert annað? Það þýðir ekkert að verða brjálaður eða tapa sér yfir þessu, það verður bara að taka því sem að höndum ber. Ég vona bara að fólk fari ekki að flýja héðan vegna þessa. Ég hef kannski svolitlar áhyggjur af því, að fólk hugsi sig tvisvar um, fólk sem á ekki rætur hingað. Það er auðvitað ekki skemmtileg tilhugsun að þurfa að rýma húsin sín kannski ítrekað og vita ekkert hvað verður um þau, vera alveg bjargar­laus. En við náttúru­lega ráðum ekki við náttúruna, það er bara málið, manninum tekst aldrei að temja náttúruna.“

Nú styttist til jóla og ástandið á Seyðis­firði mun setja mark sitt á jólahald að mati Hólm­fríðar. „Það liggur við að maður sé búin að setja jólin á hold. Mér finnst það svolítið stemningin en ég held nú samt að við höldum upp á jólin, þau koma alltaf þó þau verði kannski aðeins öðru vísi en vanalega vegna þessa.“

Gríð­ar­legar ham­farirSvo sem sjá má hefur skriðan verið mjög stór.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár