Bóluefni tefst og lengra þar til hjarðónæmi næst

Lengra er þangað til hjarð­ó­næmi næst gegn Covid-19 heldur en von­ast var til. Ástæðan er sú að færri skammtar af bólu­efni munu koma til lands­ins heldur en von var á næstu vikur, vegna hrá­efn­is­skorts hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Pfizer. Bólu­setn­ing mun samt sem áður lík­lega hefj­ast milli jóla og nýárs.

Ekki munu nema um fimm þús­und skammtar af bólu­efni gegn Covid-19 veirunni ber­ast til lands­ins í fyrstu send­ingu. Sú send­ing er vænt­an­leg á næstu dögum og von­ast er til að hægt verði að byrja að bólu­setja fram­línu­starfs­fólk, um eitt þús­und manns, og aldr­aða, um þrjú til fjögur þús­und manns, milli jóla og nýárs. Næsta send­ing kemur í jan­úar eða febr­úar og mun inni­halda um átta þús­und skammta. Hjarð­ó­næmi verður vænt­an­lega ekki náð fyrr en um mitt næsta ár eða seinni part árs­ins. 

Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Þar kom fram að Ísland hefði gert samn­inga um að fá 85 þús­und skammta af bólu­efni frá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Pfizer en vegna hrá­efn­is­skorts seink­aði fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins á bólu­efn­inu. Óvíst væri hvenær næstu skammtar af bólu­efn­inu myndu ber­ast, eftir þá átta þús­und skammta sem ber­ast eiga í upp­hafi næsta árs. 

Þá sagði Þórólfur að ekki væri hægt að reikna með að fá önnur bólu­efni fyrr en um mitt næsta ár, en Ísland hefur auk samn­ing­ana við Pfizer tryggt sér bólu­efni frá Moderna og AstraZeneca. Fyrr­nefnda bólu­efnið verður tekið til afgreiðslu af Lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna í dag og er búist við að notkun þess verði heim­iluð. 

Alma Möller land­læknir sagði mark­mið bólu­setn­ingar vera að ná hjarð­ó­næmi og til þess að svo mætti verða þyrfti að bólu­setja 65 pró­sent þjóð­ar­innar. Í ljósi vand­kvæða við fram­leiðslu Pfizer á bólu­efni sínu og þess að ekki væri búist við öðrum bólu­efnum á næst­unni er lík­legt að hjarð­ó­næmi náist ekki hér á landi fyrr en í fyrsta lagi um mitt næsta ár og jafn­vel ekki fyrr en á seinni hluta árs­ins. 

Ingileif Jóns­dóttir, pró­fess­or við lækna­deild Há­skóla Ís­lands og deild­ar­stjóri hjá Ís­lenskri erfða­grein­ingu, sagði að þrátt fyrir flýti­af­greiðslu á bólu­efni Pfizer og mögu­lega ann­arra bólu­efna væru þau full­kom­lega jafn örugg og önnur bólu­efni. Gríð­ar­lega mik­ill ávinn­ingur væri af því fyrir flesta ein­stak­linga og sam­fé­lagið allt að fá bólu­setn­ingu. Ávinn­ing­ur­inn væri miklu meiri en áhættan, þó alltaf gætu komið upp auka­verk­anir. Þær auka­verk­anir sem væru alvar­legar væru hins vegar afar sjald­gæfar, mögu­lega einn á móti hálfri til einni milljón. Þá sýndu bólefni Pfizer og Moderna mikið öryggi og mikla vernd, 94-95 pró­sent vernd gegn veirunni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár