Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.

Gerður Kristný var limbódrottning í reiðskólanum Saltvík þegar hún var 10 ára. Hún segir að ef þjóðin hefði átt sitt limbólandslið og góða limbóaðstöðu fyrir hæfileikaríka limbókrakka hefði hún snúið sér alfarið að því og væri þá limbóþjálfari og skáld í dag.

Einu sinni var ekk­ert til. Ekki jörðin, ekki Mos­fells­bær og ekki ég. Það var bara til myrkur og hnettir sem þutu um geim­inn. Þetta hefur varla verið skemmti­legur heimur. Eins gott að ég birt­ist ekki fyrr en búið var að finna upp jörð­ina og Mos­fells­bæ­inn. Og auð­vitað afmæl­is­daga. 

Bókin Iðunn og afi pönk eftir Gerði Kristnýju hefst á þessum hug­leið­ingum Iðunnar, aðal­per­sónu bók­ar­innar, dag­inn sem hún verður ell­efu ára. Mamma hennar og pabbi eru á leið­inni í göngu­ferð úti á landi og afi hennar ætlar að gæta Iðunnar á meðan.   

„Ég hlakka svo til að hitta afa,“ sagði ég. 
„Ég get trúað því,“ sagði mamma. 
„Hann ætlar að koma í fyrra­málið með afmæl­is­gjöf handa þér.“ 
Í fyrra gaf afi mér veiði­ferð í afmæl­is­gjöf. Þótt við veiddum ekk­ert var þetta frá­bær dagur því þar sem við dól­uðum á bát og biðum eftir að fiskur biti á kenndi afi mér að blístra. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár