Jakob Valgeir og Elmar leigja út skip til útgerðar í Namibíu

Útgerð­ar­mað­ur­inn Jakob Valgeir Flosason og fyrr­ver­andi banka­mað­ur­inn, Elmar Svav­ars­son, keyptu tog­ara og leigja hann til hesta­makrílsveiða í Namibíu. Um er að ræða fyrsta skipið í eigu íslenskra fjár­festa sem fer til veiða í Namibíu eftir að Sam­herj­a­málið kom upp í lok árs í fyrra.

Jakob Valgeir og Elmar leigja út skip til útgerðar í Namibíu
Með stærstu útgerðum Íslands Útgerð Jakob Valgeirs í Bol­ung­ar­vík hefur í gegnum árin verið ein af þeim 20 stærstu í land­inu miðað við kvóta­hlut­deild. Hann er kom­inn í útrás til Namibíu með togar­ann Erni sem veiðir hest­makríl.

Jakob Valgeir Flosason, útgerð­ar­maður frá Bol­ung­ar­vík, og Elmar Svav­ars­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Glitnis banka, eru byrj­aðir að leigja út tog­ara sem gerir út í Namibíu. Togarinn heitir Ernir og er skráður með heima­höfn í smá­rík­inu Belís í Mið-Ameríku. Fyr­ir­tækið sem leigir skipið heitir Tunacor Fis­heries og er namibískt útgerð­ar­fé­lag. Þetta er sama útgerð­ar­fé­lag og hefur keypt togar­ann Heinaste af Samherja. 

Jakob Valgeir og Elmar hafa stofnað saman félagið NFS ehf. til að halda utan um eign­ar­hald tog­ar­ans sem veiðir hesta­makríl í Namibíu. Eign­ar­hald NFS ehf. á tog­ar­anum er í gegnum spænskt félag, North Fish Seafood á Las Palmas á Kanarí­eyjum. Stjórn­ar­menn í því félagi eru áður­nefndur Elmar og Hlynur Þórisson, sam­kvæmt gögnum um félagið úr spænsku hluta­fé­laga­skránni. 

„Þetta er rétt, já, en við erum ekki að gera út skipið heldur leigðum við það út,“ segir Jakob Valgeir í sam­tali við Stundina.

Jakob Valgeir segir að til standi að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár