Gengur um miðbæ í mótun

Örlygur Ómar Árnason hefur gengið um miðborg Reykja­víkur áratugum saman. Hann saknar ferða­mannanna.

Miðbærinn hefur breyst til betri vegar
Mið­bær­inn hefur breyst til betri vegar Örlygur saknar þó túristana sem glæddu eitt sinn mið­borg­ina lífi Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég er lítið að bralla þessa dagana þar sem ég er sjötíu og eins árs og er elli­lífeyris­þegi. Ég reyni sem mest að hafa það náðugt. Ég þvæ þvott og þríf heimilið á meðan konan er í vinnunni.

Annars geng ég daglega um miðbæinn og hef gert svo áratugum skiptir. Ég gekk kannski ekki á hverjum degi þessi ár sem ég var enn að vinna en almennt hef ég sótt mikið í miðbæinn. Uppáhaldið mitt er Lauga­vegurinn og Austur­stræti, þar labba ég upp og niður og út um allan bæ.

Í göngu­ferðunum fylgist ég vel með framkvæmdum í miðbænum. Ég fer og skoða hvernig gengur að byggja hótelin og svona. Ég hef því séð á þessum árum hvernig miðbærinn hefur breyst, það er komið svo miklu meira líf í borgina. Við hjónin bjuggum á Kárastíg í nokkur ár, þá var ekkert um að vera. Núna síðustu fimmtán ár …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár