Af þriðju kynslóð kvenna með fíknivanda og býr á götunni: „Ég er góð manneskja“

Amma hennar neytti fíkni­efna og mamma hennar var fík­ill. Sjálf er hún búin að vera í neyslu síðan hún var tólf ára og varð sprautu­fík­ill 16 ára. Í dag er hún 23 ára, heim­il­is­laus og hefur séð sorg­ina og dauð­ann í heimi þeirra sem eru í neyslu en dreymir um að verða dýra­læknir.

Af þriðju kynslóð kvenna með fíknivanda og býr á götunni: „Ég er góð manneskja“

Hún kemur fyrir sjónir sem glæsi­leg, snyrti­lega klædd og vel förðuð ung kona, en aug­ljós­lega undir áhrifum og svo­lítið óskýr í tali. Hún býr í hús­næði borg­ar­innar fyrir heim­il­is­lausar konur og er þar með sér­her­bergi. Áður bjó hún í Konukoti þar sem hún þurfti að fara út á morgn­ana og mátti ekki koma aftur fyrr en á kvöldin. 

Við köllum hana Önnu. Það er ekki hennar rétta nafn, en hún treystir sér ekki til þess að stíga fram undir nafni og mynd. Anna er ein þriggja systra, en móðir þeirra var í neyslu og þær fluttu oft á milli staða. Rót­leysið var mikið. Innt eftir því hvort hægt sé að ræða við móður hennar svarar Anna: „Hún hefur nóg að gera. Ég er ekk­ert viss um að hún nenni að tala við þig. Hún er að fara að gifta sig og er í vinnu og námi. En ég skal …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár